Velferðarnefnd
Dagskrá
1.Trúnaðarmál - velferðarnefnd - 2026010087
Eitt trúnaðarmál lagt fyrir.
Trúnaðarmál rætt og afgreitt, fært til bókar í trúnaðarmálamöppu velferðarnefndar.
2.Fullnaðarafgreiðsla 2026. - 2026010407
Lagðar fram upplýsingar um fullnaðarafgreiðslu mála í félagsþjónustu á velferðarsviði Ísafjarðarbæjar í febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.
3.Velferðarnefnd - styrkbeiðnir - 2026030184
Sálfræðistofan Höfðabakki sækir um styrk til velferðarsviðs fyrir verkefnið, Sterkari út lífið, sem varðar forvarnir, lýðheilsu, æskulýðsmál, sjálfsmynd barna og unglinga og valdeflingu foreldra. Um er að ræða verkefni sem hefur það að markmiði gefa foreldrum ókeypis efni, byggt á vísindum, sem auðveldar þeim að takast á við foreldrahlutverkið og styrkja sjálfsmynd barna sinna. Upphæð styrkbeiðninnar er óskilgreind.
Velferðarnefnd hvetur umsækjanda til að sækja um styrk á haustdögum 2026 vegna fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2027. Jafnframt felur velferðarnefnd starfsmönnum að kanna hvort svigrúm sé í fjárhagsáætlun 2026 til styrkveitingar.
4.Beiðni um fjölgun stöðugilda á skrifstofu velferðarsviðs - 2026030185
Lögð fram greinargerð Margrétar Geirsdóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs þar sem óskað er eftir heimild til þess að ráða verkefnastjóra og ráðgjafa í 100% stöðugildi hvors fyrir sig á skrifstofu velferðarsviðs.
Velferðarnefnd tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í greinargerð um aukið álag og breyttar forsendur í velferðarþjónustu sveitarfélagsins.
Ljóst er að umfang mála og flækjustig hefur aukist verulega á undanförnum misserum, bæði innan barnaverndar og félagsþjónustu, sem og vegna aukinna verkefna tengdum málefnum fatlaðra og móttöku flóttamanna. Fyrir liggur að fjöldi mála hefur farið fram úr fyrri áætlunum og að álag á starfsfólk er orðið verulegt.
Nefndin leggur áherslu á að þjónusta við börn og fjölskyldur, sem og aðra viðkvæma hópa, sé ávallt í samræmi við lögbundnar skyldur og fagleg viðmið. Tryggja þarf að starfsfólk hafi raunhæfan málafjölda og svigrúm til að sinna verkefnum sínum með þeim gæðum sem krafist er.
Með hliðsjón af framangreindu telur velferðarnefnd nauðsynlegt að bregðast við með því að efla mannafla á velferðarsviði og styður því ráðningu bæði verkefnastjóra í félagsþjónustu og ráðgjafa í barnavernd í 100% stöðugildi hvort.
Nefndin áréttar að í vaxandi samfélagi er mikilvægt að uppbygging þjónustu haldist í hendur við fjölgun íbúa og auknar kröfur til opinberrar þjónustu. Velferð, öryggi og hagsmunir íbúa skulu ávallt vera í forgrunni við ákvarðanatöku.

5.Forvarnarstefna Ísafjarðarbæjar 2025 - 2025030036
Forvarnarstefna Ísafjarðarbæjar umræða um næstu skref í vinnslu stefnunnar.
Velferðarnefnd ákvað vinnufund fimmtudaginn 26. mars 2026.
Fundi slitið - kl. 12:45.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?