Velferðarnefnd

499. fundur 12. mars 2026 kl. 12:00 - 13:10 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Þórir Guðmundsson formaður
  • Gerður Ágústa Sigmundsdóttir aðalmaður
  • Dagný Finnbjörnsdóttir aðalmaður
  • Hlynur Reynisson aðalmaður
Starfsmenn
  • Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Harpa Stefánsdóttir deildarstjóri félagsþjónustu
  • Jóhanna Gréta Hafsteinsdóttir ráðgjafi
Fundargerð ritaði: Harpa Stefánsdóttir deildarstjóri félagsþjónustu
Dagskrá

1.Öldungaráð 2026 - 2026010402

Samráðsfundur velferðarnefndar og öldungaráðs. Öldungaráði boðið að koma á framfæri sínum áherslum við velferðarnefnd.
Velferðarnefnd þakkar öldungaráði fyrir góðan fund. Rædd voru áherslumál öldungaráðs og fyrirhugað frekara samstarf.
Óskar öldungaráð eftir að málum sem snúa að öldruðum verði vísað til umsagnar hjá öldungaráði.
Áhersla verði verði lögð á að flýta framkvæmdum á 4 hæðinni á Hlíf I vegna langs biðlista.
Breyta eldhúsinu á Hlíf og stækka matsalinn.
Farið verði í framkvæmdir á kjallara í Hlíf 2 sem allra fyrst og lögð áhersla á loftræstingu.
Auður, Heiða, Karítas og Sigrún Kamilla yfirgáfu fund kl 13:10

Gestir

  • Auður Ólafsdóttir, formaður öldungaráðs - mæting: 12:00
  • Heiða Björg Ólafsdóttir, aðalfulltrúi skipaður af heilsugæslu - mæting: 12:00
  • Karítas Pálsdóttir, aðalmaður í öldungaráði - mæting: 12:00
  • Sigrún Kamilla Halldórsdóttir, aðalmaður í öldungaráði - mæting: 12:00

Fundi slitið - kl. 13:10.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?