Velferðarnefnd

383. fundur 10. desember 2013 kl. 16:00 - 18:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Jón Reynir Sigurðsson varaformaður
  • Gunnar Þórðarson aðalmaður
  • Anna Valgerður Einarsdóttir deildarstjóri barnaverndar
  • Harpa Stefánsdóttir deildarstjóri fötlunarþjónustu
  • Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Sædís María Jónatansdóttir deildarstjóri félagsþjónustu
  • María Hrönn Valberg varamaður
Fundargerð ritaði: Sædís María Jónatansdóttir 383. fundur félagsmálanefndar Ísafjarðarbæjar
Dagskrá
Sturla Páll Sturluson og Björn Davíðsson boðuðu forföll. Rannveig Þorvaldsdóttir mætti ekki. María Hrönn Valberg mætti sem varamaður. Aðrir varamenn komust ekki.

1.Trúnaðarmál. - 2011090094

Fimm trúnaðarmál lögð fram í félagsmálanefnd.
Trúnaðarmálin afgreidd og færð til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar.

2.Rekstur kvennaathvarfs 2014 - styrkbeiðni - 2013100070

Lögð er fram umsókn Þórlaugar R. Jónsdóttur, rekstrarstjóra Kvennaathvarfsins, dags. október sl, þar sem óskað er eftir fjárstuðningi vegna reksturs Kvennaathvarfsins fyrir árið 2014.
Lagt fram til kynningar.

3.Sumardvöl fatlaðra barna í Reykjadal 2013 - 2013090023

Lagt fram bréf dags. 10. september s.l. þar sem óskað er eftir þátttöku í kostnaði við rekstur sumarbúða fyrir fötluð börn og ungmenni.
Félagsmálanefnd samþykkir styrk vegna tveggja einstaklinga.

4.Fundargerðir 2010-2013 - Nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði - 2010070042

Lagðar fram fundargerðir 27.-32. fundar.
Lagt fram til kynningar.

5.Ársskýrsla fyrir árið 2011. - 2013120015

Lögð fram ársskýrsla Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins fyrir árið 2011.
Lagt fram til kynningar.

6.Frumvarp til laga um húsaleigubætur (námsmenn), 147. mál - 2013120016

Lagt fram frumvarp til laga um húsaleigubætur.
Lagt fram til kynningar. Félagsmálanefnd álítur þessar breytingar jákvæðar þar sem þær stuðla að jafnrétti til náms.

7.Félagsskýrslur 2013. - 2013050032

Lagður fram tölvupóstur frá Valgerði Freyju Ágústsdóttur dags. 20. nóvember s.l. vegna félagsþjónustuskýrslna.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?