Umhverfis- og framkvæmdanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
41. fundur 07. febrúar 2017 kl. 10:15 - 11:05 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir formaður
  • Kristín Hálfdánsdóttir aðalmaður
  • Helga Dóra Kristjánsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Gísli Elís Úlfarsson aðalmaður
  • Hildur Dagbjört Arnardóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Hálfdán Bjarki Hálfdánsson upplýsingafulltrúi
  • Ralf Trylla umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði: Hálfdán Bjarki Hálfdánsson upplýsingafulltrúi
Dagskrá

1.Eftirlit - Kubbur ehf. - Sorpmál. - 2011030081

Lagðar fram upplýsingar frá umhverfisfulltrúa um feril endurvinnsluefnis.
Nefndin þakkar fyrir framlögð gögn.

2.Lífrænn úrgangur til landgræðslu - 2017020003

Lagður fram tölvupóstur dags. 1. febrúar 2017 frá Áskeli Þórissyni um lífrænan úrgang til landgræðslu þar sem fjallað er um tækifæri í landgræðslu og notkun lífræns úrgangs til hennar.
Lagt fram til kynningar.

3.Gangstéttar 2017 - 2017020006

Lögð fram áætlun tæknideildar um viðhald gangstétta á árinu 2017.
Lagt fram til kynningar.

4.Innleiðingar Árósasamningsins - 2017020010

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að skýrslu ráðuneytisins um stöðu innleiðingar Árósasamningsins hér á landi. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar því eftir umsögnum og athugasemdum við skýrsludrögin. Frestur til að skila umsögnum rennur út miðvikudaginn 1. mars næstkomandi.
Afgreiðslu erindisins frestað til næsta fundar.

Fundi slitið - kl. 11:05.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?