Umhverfis- og framkvæmdanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Aðstaða og aðgengi að skotsvæði á Dagverðardal - 2026060080
Lagt fyrir erindi frá Páli Janusi Þórðarsyni fyrir hönd Skotíþróttafélags Ísafjarðar dagsett 4. júní 2026 er varðar utandyra-aðstöðu félagsins fyrir riffil- og haglabyssuskotfimi og óskað eftir liðsinni bæjarins við að finna farsæla lausn til framtíðar. Á 44. fundi Skóla- íþrótta og tómstundanefnd þann 19. júní 2026 var bókað að skóla- íþrótta og tómstundarnefnd tekur vel í erindið og leggur áherslu á að finna jákvæða lausn til framtíðar og vísar nefndin málinu til umhverfis- og framkvæmdarnefndar þar sem um ræðir veg upp á útivistarsvæði í Dagverðardal.
Valur Richter mætir fyrir hönd Skotís til að skýra afstöðu þeirra og sendi með skýrslu frá Skotís með tillögum.
Valur Richter mætir fyrir hönd Skotís til að skýra afstöðu þeirra og sendi með skýrslu frá Skotís með tillögum.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd óskar eftir minnisblaði frá sviðstjóra umhverfis- og eignarsviðs um tímabundna lausn á aðgengi að núverandi aðstöðu. Nefndin er sammála því að þurfi að finna aðra framtíðarlausn fyrir félagið og óskar eftir ítarlegri samtali við forsvarsmenn félagsins um framtíðarstaðsetningu.
Valur Richter yfirgaf fund kl. 8:42
Gestir
- Valur Richter fyrir hönd Skotís - mæting: 08:30
2.Þjónustumiðstöð og garðyrkjudeild - 2026070025
Páll Brynjar Pálsson, verkstjóri þjónustustöðvar, og Sighvatur Jón Þórarinsson, garðyrkjustjóri þjónustustöðvar, mæta til fundar til að kynna sig og sína starfsemi. Tala um helstu verkefni, helstu áskoranir og kynnast nefndarmönnum og gefa nefndarmönnum innsýn í starfið.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd þakkar Páli Brynjar og Sighvati kærlega fyrir heimsóknina og hlakkar til samstarfs við bæði áhaldahús og garðyrkjudeild. Nefndin mun halda framhaldsfundi með áherslu á gott samráð um forgangsröðun, verklag og úrbætur.
Páll Brynjar Pálsson og Sighvatur Jón Þórarinsson yfirgefa fund kl.09:42.
Gestir
- Sighvatur Jón Þórarinsson, garðyrkjustjóri Þjónustustöðvar - mæting: 09:00
- Páll Brynjar Pálsson, verkstjóri þjónustustöðvar - mæting: 09:00
3.Uppbygging reiðhjólaleiða á Seljalandsdal - 2026060029
Lagt fyrir erindi frá Páli Janusi Þórðarsyni fyrir fyrir hönd Reiðhjóladeildar Vestra dagsett 3. júní 2026 er varðar leyfisveitingu til jarðrasks vegna brautargerðar til íþróttaiðkunar í og við Seljalandsdal við Skutulsfjörð. Á 44. fundi Skóla- íþrótta og tómstundanefnd tók nefndinn jákvætt í erindið þann 19. júní 2026 og vísar nefndin málinu áfram til umhverfis- og framkvæmdarnefndar til ákvörðunartöku, þar sem um leyfisveitingu um jarðrask í Tungudal er að ræða.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd óskar eftir því að Reiðhjóladeild Vestra kynni verkefnið nánar fyrir nefndinni á næsta fundi þar sem gert er ítarlega grein fyrir umfangi verkefnisins.
4.Númerslausir bílar og landhreinsun 2026 - 2026070026
Erla Margrét Gunnarsdóttir, skipulags- og umhverfisfulltrúa kynnir stöðu mála er varða númerslausa bíla í sveitarfélaginu og lóðahreinsun.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd þakkar Erlu fyrir og leggur áherslu á að gripið verði með markvissum hætti til aðgerða vegna lóðahreinsunar og númerslausra ökutækja á landi sveitarfélagsins.
Nefndin telur mikilvægt að sveitarfélagið fylgi þessum málum fast eftir, bæði með tilliti til ásýndar byggðakjarna, umferðaröryggis, brunavarna, umhverfissjónarmiða og jafnræðis gagnvart íbúum og rekstraraðilum.
Nefndin felur starfsmanni að vinna aðgerða- og kostnaðaráætlun vegna átaks í lóðahreinsun og meðhöndlunar númerslausra ökutækja. Í áætluninni verði meðal annars gerð grein fyrir umfangi verkefnisins, forgangsröðun svæða, mögulegum úrræðum, kostnaði og tímasettri framkvæmd.

5.Deiliskipulag Eyrarkláfur nýtt - 2025100175
Skipulags- og mannvirkjanefnd vísar athugasemdum sem bárust vegna umferðarálags og umferðaröryggis á svæðinu til umhverfis- og framkvæmdanefndar til heildstæðar endurskoðunar á umferðaröryggisáætlun sveitarfélagsins.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd tekur undir að þörf sé á heildstæðri endurskoðun á umferðaröryggisáætlun sveitarfélagsins. Nefndin leggur til að ný umferðaröryggisáætlun fyrir sveitarfélagið verði sett inn í fjárhagsáætlun 2027.
6.Leiksvæðið í Holtahverfi - 2026060146
Lagt fram minnisblað Erlu Margrétar Gunnarsdóttur, skipulags- og umhverfisfulltrúa, dags. 5. júlí 2026, varðandi kostnað og staðsetningu ærslabelgs í Holtahverfi.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur starfsmanni nefndar að finna fjármagn og koma málinu áfram.
7.Almenningssamgöngur 2026 - 2026070027
Almenn umræða um almenningssamgöngur innan Ísafjarðarbæjar.
Máli frestað og óskar nefndin eftir kynningu á stöðu mála frá Eyþóri Guðmundssyni, deildarstjóra umhverfis- og eignarsviðs á næsta fundi nefndarinnar.
8.Aðgengismál fatlaðs fólks í Ísafjarðarbæ - 2026070029
Almenn umræða um aðgengismál fatlaðs fólks í Ísafjarðarbæ og aðgerðaráætlun.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur áherslu á að unnið verði markvisst að úrbótum í aðgengismálum fatlaðs fólks í Ísafjarðarbæ. Nefndin felur starfsmanni nefndarinnar að taka saman minnisblað um þau atriði og verkefni sem falla undir aðgengismál og eru þegar í vinnslu eða hafa verið skilgreind innan umhverfis- og eignarsviðs.
9.Hverfisráð - fundargerðir 2026 - 2026020010
Lögð fram til kynningar fundargerð Hverfisráðs Dýrafjarðar frá 2. júní 2026 með punktum frá starfsmanni nefndar.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd þakkar starfsmanni nefndar yfirferðina. Mál varðandi gulmerkingar verður tekið fyrir á næsta fundi nefndarinnar.
10.Samningur við Náttúrfræðistofnun um refaveiðar 2026-2028 - 2026070024
Lagður fram samningur frá Náttúrufræðistofnun um refaveiðar.
Sambærilegir samningar hafa verið gerðir mörg undanfarin ár og hefur gildistími þeirra verið til þriggja ára í senn með fyrirvörum sem tilgreindir eru.
Sambærilegir samningar hafa verið gerðir mörg undanfarin ár og hefur gildistími þeirra verið til þriggja ára í senn með fyrirvörum sem tilgreindir eru.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur starfsmanni nefndar að fullvinna samninginn með tilliti til árlegs kostnaðar sveitarfélagsins við refaveiðar og leggja aftur fyrir nefnd.
11.Fundargerðir heilbrigðisnefndar 2026 - 2026070028
Lögð fram til kynningar fundargerð 156. fundar heilbrigðisnefndar Vestfjarðasvæðis ásamt Ársreikning Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða 2025.
Lagt fram til kynningar.
12.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lögð fram til kynningar, umsagnarbeiðni úr samráðgátt stjórnvalda, dags. 16. júní 2026, Áform um frumvarp til laga um orkunýtni frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, mál nr. 103/2026.
Áform eru um lagasetningu um orkunýtni til innleiðingar á tilskipunum ESB um orkunýtni. Markmið laganna er að bæta orkunýtni, uppfylla skuldbindingar samkvæmt EES-samningnum og styrkja umgjörð um orku.
Umsagnarfrestur er til og með 6. júlí 2026.

13.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lögð fram til kynningar, umsagnarbeiðni úr samráðgátt stjórnvalda, dags. 30. júní 2026, Reglugerð um Loftslags- og orkusjóð frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, mál nr. 106/2026.
Um er að ræða heildarendurskoðun á reglugerð nr. 1566/2024. Markmið breytingarinnar er að einfalda reglugerðina og fjarlægja úrelt ákvæði um einstök styrkjaköll fyrri ára. Reglur um einstök styrkjaköll eru nú útfærð af stjórn sjóðsins og birtar í auglýsingum, leiðbeiningum og handbókum fyrir hvert kall. Þá er gerður skýrari greinarmunur á beinum styrkjum annars vegar og samkeppnisstyrkjum hins vegar.
Umsagnarfrestur er til og með 5. ágúst 2026.

Fundi slitið - kl. 10:35.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?