Umhverfis- og framkvæmdanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Fræðsla fyrir kjörna fulltrúa 2026 - 2026060025
Bryndís Ósk Jónsdóttir, bæjarritari, mætir til fundar með fræðslu fyrir nýkjörna fulltrúa.
Kynnt.
Bryndís Ósk Jónsdóttir, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs yfirgaf fund kl. 10:21
Gestir
- Bryndís Ósk Jónsdóttir, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs - mæting: 10:00
2.Hverfisráð - fundargerðir 2026 - 2026020010
Á 1370. fundi bæjarráðs þann 11. júní 2026 var lögð fram til kynningar fundargerð Hverfisráðs Dýrafjarðar frá 2. júní 2026. Bæjarráð fól bæjarstjóra að hefja vinnu við að skýra og staðla verkferla í samskiptum við hverfisráð og vísaði fundargerð Hverfisráðs Dýrafjarðar til umfjöllunar í umhverfis- og framkvæmdanefnd og skipulags- og mannvirkjanefnd.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd hrósar hverfisráði Þingeyrar fyrir góða fundargerð.
Varðandi fyrsta fundarpunkt, Hafnarstrætið, felur nefndin starfsmanni nefndarinnar, að útbúa stutt minnisblað varðandi lagnir og malbikun Hafnarstrætis. Varðandi önnur atriði fundargerðar hverfisráðsins, felur nefndin starfmanni að fylgja þeim eftir og upplýsa nefnd á næsta fundi.

3.Leiksvæðið í Holtahverfi - 2026060146
Hannibal Hafberg, formaður umhverfis- og framkvæmdanefndar óskar eftir umræðu um leiksvæðið í Holtahverfi á Ísafirði, til að ræða sérstaklega hvaða möguleikar eru í boði við að koma nýjum ærslabelg á svæðið.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd hefur hug á að koma upp ærslabelg í Holtahverfi og felur starfsmanni nefndar að skoða útfærslu og kostnaðaráætlun og leggja fram á næsta fundi.
Einnig óskar nefndin eftir umsögn frá hverfaráði Holtahverfis varðandi staðsetningu ærslabelgs innan leiksvæðið.
Einnig óskar nefndin eftir umsögn frá hverfaráði Holtahverfis varðandi staðsetningu ærslabelgs innan leiksvæðið.
4.Umsókn um leyfi til hænsnahalds - 2026050048
Lögð fram umsókn Ralf Trylla, dags. 7. maí 2026, um leyfi til hænsnahalds í Smiðjugötu 6 á Ísafirði.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir umsókn Ralf Trylla um hænsnahald í Smiðjugötu 6 á Ísafirði.
5.Rekstur landsbyggðarvagna - 2026060127
Lögð fram til kynningar tilkynning Vegagerðarinnar, dags. 12. júní 2026, þar sem tilkynnt er að rekstur akstursleiðar nr. 61 (Ísafjörður-Hólmavík) verður hætt haustið 2026, vegna kostnaðar.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd harmar viðhorf stjórnvalda til landsbyggðarinnar og finnst miður að þjónustu við svæðið fari minnkandi.
6.Náttúrustofur - úttekt á starfsemi og tillögur að framtíðarfyrirkomulagi - 2024110126
Lagt fram til kynningar erindi Steinars Kaldal, f.h. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, dags. 5. maí 2026, varðandi skipan starfshóps sem á að leggja fram tillögur að framtíðarfyrirkomulagi náttúrustofa landsins, markvissari ráðstöfun fjármuna, aukinn skýrleika um verkefni sem ríkið fjármagnar, bætann fyrirsjáanleika í rekstri náttúrustofa og trygga varðveislu og aðgengi að gögnum.
Málið var tekið fyrir á 1369. fundi bæjarráðs, þann 7. maí 2026, og var því vísað til kynningar í umhverfis- og framkvæmdanefnd.
Málið var tekið fyrir á 1369. fundi bæjarráðs, þann 7. maí 2026, og var því vísað til kynningar í umhverfis- og framkvæmdanefnd.
Lagt fram til kynningar.
7.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lögð fram til kynningar, umsagnarbeiðni úr samráðgátt stjórnvalda, dags. 3. júní 2026, með drögum að aðgerðaáætlun stefnu íslenskra stjórnvalda um líffræðilega fjölbreytni 2026-2030, mál nr. 96/2026.
Stefna íslenskra stjórnvalda um vernd líffræðilegrar fjölbreytni var gefin út af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í byrjun árs 2026. Stefnan byggir á sex leiðarljósum sem draga fram lykiláherslur stefnunnar og mynda grunn að þeim aðgerðum sem stjórnvöld hyggjast fara í til að auka vernd líffræðilegrar fjölbreytni.
Umsagnarfrestur er til og með 24. júní 2026.

Fundi slitið - kl. 11:14.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?