Umhverfis- og framkvæmdanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
Formaður leggur til að eitt mál verði tekið inn með afbrigðum. Það er samþykkt af 5-0 og verður sett inn sem síðasta mál á dagskrá.
1.Túngata Ísafirði - Umferðaröryggi - 2026020069
Á 166. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar þann 25. febrúar 2026 var lagt fyrir minnisblað frá Erlu Margréti Gunnarsdóttur, skipulagsfulltrúa, í framhaldi af tölvupósti frá íbúa dags. 11. janúar 2026, varðandi umferðaröryggi á Túngötu Ísafirði. Umhverfis- og framkvæmdanefnd fór yfir mögulegar lausnir til að bæta umferðaröryggi á Túngötu. Nefndin telur að einstefna eða vistgata séu ekki vænlegar leiðir að svo stöddu, en að æskilegt sé að skoða uppsetningu hraðahindrana, blikkandi hraðaskilti og að taka þurfi á bílastæðamálum á svæðinu.
Nú eru boðaðir fulltrúar íbúa á Túngötu ásamt Páli Brynjari Pálssyni, verkstjóra áhaldahúss, á fund nefndarinnar til að ræða mögulegar úrbætur og vinna að úrlausn málsins.
Nú eru boðaðir fulltrúar íbúa á Túngötu ásamt Páli Brynjari Pálssyni, verkstjóra áhaldahúss, á fund nefndarinnar til að ræða mögulegar úrbætur og vinna að úrlausn málsins.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd þakkar gestum kærlega fyrir komuna. Nefndin samþykkir bráðabirgðaaðgerðir í samráði við áhaldahús sem fela í sér hraðahindranir og skilti. Langtímaaðgerðir verða skoðaðar í framhaldi af því og felur starfsmanni að vinna málið áfram. Nefndin leggur áherslu á að framtíðaraðgerðir taki mið að öryggi vegfaranda og barna.
Páll Brynjar Pálsson, verkstjóri áhaldahúss og Erla Jóhannsdóttir, íbúi við Túngötu yfirgáfu fund kl. 09:04
Gestir
- Páll Brynjar Pálsson, verkstjóri áhaldahúss - mæting: 08:30
- Erla Jóhannsdóttir, íbúi við Túngötu - mæting: 08:30
2.Life - Icewater 2025-2030 - 2025020024
Lagt er fyrir nefndina minnisblað Höllu Sigrúnar Sveinbjörnsdóttur, verkefnastjóra veitna, dagsett 26. febrúar 2026. Ásamt tilboði og samningsdrögum frá Náttúrustofu Vestfjarða, dagsett miðvikudaginn 18. mars 2026. Vegna sýnatöku og vöktunar á vatnshlotinu Skutulsfirði innri í tengslum við ICEWATER-verkefnið.
Lagt er til að tilboð Náttúrustofu Vestfjarða verði samþykkt og að starfsmanni nefndarinnar verði falið að ganga frá samningum við Náttúrustofu Vestfjarða.
Eyþór Guðmundsson, deildarstjóri Umhverfis- og eignasviðs og Halla Sigrún Sveinbjörnsdóttir, verkefnastjóri veitna (ICEWATER) mæta fyrir nefndina.
Lagt er til að tilboð Náttúrustofu Vestfjarða verði samþykkt og að starfsmanni nefndarinnar verði falið að ganga frá samningum við Náttúrustofu Vestfjarða.
Eyþór Guðmundsson, deildarstjóri Umhverfis- og eignasviðs og Halla Sigrún Sveinbjörnsdóttir, verkefnastjóri veitna (ICEWATER) mæta fyrir nefndina.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir tilboð Náttúrustofu Vestfjarða og felur starfsmanni nefndarinnar að ganga frá samningum við Náttúrustofu Vestfjarða.
Gestir
- Eyþór Guðmundsson, deildarstjóri umhverfis og eignarsviðs - mæting: 09:06
- Halla Sigrún Sveinbjörnsdóttir, verkefnastjóri veitna - mæting: 09:06
3.Life - Icewater 2025-2030 - 2025020024
Lagt er fram minnisblað Höllu Sigrúnar Sveinbjörnsdóttur, verkefnastjóra veitna og Eyþórs Guðmundssonar, deildarstjóra Umhverfis- og eignasviðs, dagsett 20. mars 2026, ásamt meðfylgjandi kostnaðaráætlun verkefnisins. Þar sem óskað er eftir heimild til að fara í örútboð innan rammasamnings Ríkiskaupa RK 14.26 vegna ráðgjafaþjónustu og hönnunar í tengslum við LIFE ICEWATER-verkefnið.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd veitir heimild til að fara í örútboð innan rammasamnings Ríkiskaupa RK 14.26 vegna ráðgjafaþjónustu og hönnunar í tengslum við LIFE ICEWATER-verkefnið.
Eyþór Guðmundsson, deildarstjóri Umhverfis- og eignasviðs og Halla Sigrún Sveinbjörnsdóttir, verkefnastjóri veitna yfirgáfu fund kl. 09:25
4.Ársreikningur 2025 - Náttúrustofa Vestfjarða - 2026030125
Lagður fram til kynningar ársreikningur Náttúrustofu Vestfjarða 2025.
Lagt fram til kynningar.
5.Gjaldskrár 2026 - 2025050026
Mál tekið inn með afbrigðum.
Lögð fram til samþykktar gjaldskrá fyrir vatnsgjald, notkunargjald, mælaleigu og heimæðargjald í Ísafjarðarbæ, vegna ársins 2026, en fyrir mistök hafði textaútgáfa af gildandi gjaldskrá vatnsveitu ekki verið lögð fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
Lögð fram til samþykktar gjaldskrá fyrir vatnsgjald, notkunargjald, mælaleigu og heimæðargjald í Ísafjarðarbæ, vegna ársins 2026, en fyrir mistök hafði textaútgáfa af gildandi gjaldskrá vatnsveitu ekki verið lögð fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja gjaldskrá fyrir vatnsgjald, notkunargjald, mælaleigu og heimæðargjald í Ísafjarðarbæ.
Fundi slitið - kl. 09:50.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?