Umhverfis- og framkvæmdanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
165. fundur 11. febrúar 2026 kl. 08:30 - 10:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Halldóra Björk Norðdahl formaður
  • Valur Richter varaformaður
  • Bernharður Guðmundsson aðalmaður
  • Þóra Marý Arnórsdóttir aðalmaður
  • Þorvaldur Óli Ragnarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Erla Margrét Gunnarsdóttir Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði: Erla Margrét Gunnarsdóttir skipulags- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá

1.Life - Icewater 2025-2030 - 2025020024

Kynnt stöðu í Icewater-verkefni. Eyþór Guðmundsson, deildarstjóri Umhverfis- og eignasviðs og Halla Sigrún Sveinbjörnsdóttir, nýr verkefnastjóri veitna (ICEWATER) mæta fyrir nefndina til að kynna verkefnið og fara yfir næstu skref í málinu í samráði við nefndina.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir kynninguna.
Halla Sigrún Sveinbjörnsdóttir yfirgaf fund kl. 9:10

Gestir

  • Halla Sigrún Sveinbjörnsdóttir, verkefnastjóri veitna - mæting: 08:30
  • Eyþór Guðmundsson, deildarstjóri umhverfis og eignarsviðs - mæting: 08:30

2.Loftslagsstefna Ísafjarðarbæjar - 2025060021

Á 164. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar þann 14. janúar 2026 fól nefndin skipulags- og umhverfisfulltrúa ásamt formanni nefndar að vinna drög að loftlagsstefnu og kynna fyrir nefnd. Nú eru fyrstu drög að loftslagsstefnu kynnt og óskað eftir umræðu. Einnig er lagt fram minnisblað Erlu Margrétar Gunnarsdóttur, skipulags- og umhverfisfulltrúa dags. 9. febrúar 2026 er varðar Umhverfisstefnu Ísafjarðarbæjar frá árinu 2017.
Lagt fram til kynningar.
Eyþór Guðmundsson yfirgaf fund kl. 9:33

3.Túngata Ísafirði - Umferðaröryggi - 2026020069

Lagt fram minnisblað Erlu Margrétar Gunnarsdóttur, skipulags- og umhverfisfulltrúa, dags. 9. febrúar 2026 til umræðu, vegna mögulegra úrbóta í umferðaröryggismálum við Túngötu á Ísafirði.

Ábendingar hafa borist frá íbúum vegna aksturslags og atviks í götunni.
Nefndin tekur undir áhyggjur íbúa. Frestað til næsta fundar skv. tilmælum í minnisblaði þar sem lagt er til að nefndarmenn meti aðstæður á vettvangi fram að næsta fundi og taki málið síðan aftur upp til ákvörðunar.

4.Númerslausir bílar 2025 - 2025050071

Lagt fram minnisblað Erlu Margrétar Gunnarsdóttir, skipulags- og umhverfisfulltrúa dags. 9. febrúar um stöðu mála er varða númerslausa bíla í sveitarfélaginu.
Lagt fram til kynningar.

5.Niðurstöður neysluvatnssýna 2025 - 2026010250

Lagður fram tölvupóstur frá Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða dags. 16. jan. 2026, ásamt niðurstöðum úr sýnatökum og heildarefnagreiningum á neysluvatni Ísafjarðar. Allar mælingar eru undir hámarksgildum neysluvatnsreglugerðar.
Lagt fram til kynningar.

6.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014

Lögð fram umsagnarbeiðni dags. 28. janúar 2026, frá Sigrúnu Helgu Sigurjónsdóttur f.h. nefndar og greiningarsviðs Alþingis, þar sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 307. mál "Tillaga til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, nr. 24/152."

Umsagnarfrestur er til og með 11. febrúar 2026. Tillaga þessi til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, nr. 24/152, er lögð fram í samræmi við 1. mgr. 3. gr. laga um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011. Um er að ræða fimm virkjunarkosti í vatnsafli og jarðvarma sem verkefnisstjórn 5. áfanga áætlunarinnar hefur fjallað um.
Lagt fram til kynningar.

7.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014

Lögð fram umsagnarbeiðni úr samráðsgátt stjórnvalda, dags. 27. janúar 2026, þar sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 16/2026, "Frumvarp til laga um til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum". Umsagnarfrestur er til og með 10. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

8.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014

Lögð fram umsagnarbeiðni úr samráðsgátt stjórnvalda, dags. 26. janúar 2026, þar sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 3/2026, "Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum".

Umsagnarfrestur er til og með 17. febrúar 2026.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd telur ljóst að breytingarnar munu hafa áhrif á landsbyggðina og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að senda inn umsögn.

Fundi slitið - kl. 10:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?