Umhverfis- og framkvæmdanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
106. fundur 01. júní 2021 kl. 08:10 - 10:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir formaður
  • Alberta G Guðbjartsdóttir varamaður
  • Geir Sigurðsson varamaður
  • Magnús Einar Magnússon aðalmaður
Starfsmenn
  • Axel Rodriguez Överby sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs
  • Helga Þuríður Magnúsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Helga Þuríður Magnúsdóttir verkefnastjóri
Dagskrá

1.Úttekt frárennslislagna 2016 - 2016110066

Lagt fram minnisblað Verkís dagsett 24.03.2021 um áætlaðan kostnað við hreinsistöðvar og sameiningu útrása í sveitafélaginu, ásamt úttekt Verkís á fráveitu Ísafjarðarbæjar dags. 18.12.2017.
Jóhann Birkir Helgason er boðaður á fund nefndar.
Jóhann Birkir Helgason yfirgaf fundinn klukkan 9:05. Nefndin þakkar Jóhanni Birki fyrir kynninguna.

2.Númerslausir bílar í Ísafjarðarbæ - Málsmeðferð - 2021050028

Umhverfis- og framkvæmdanefnd fól sviðsstjóra að vinna tillögur að verkferlum og leggja fram á næsta fundi.
Anton Helgason og Hlynur Reynisson hjá HEVF eru boðaðir til fundar.
Anton Helgason og Hlynur Reynisson hjá HEVF mæta til fundar og kynna verkferli við númeralausa bíla í sveitarfélaginu. Sviðsstjóra er falið að vinna málið áfram.

Gestir

  • Anton Helgason - mæting: 09:10
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir - mæting: 09:10
  • Hlynur Reynisson - mæting: 09:10

3.Skógrækt 2021-2031 og drög að landsáætlun ásamt umhverfismati áætlunar - 2021050048

Hrefna Jóhannesdóttir f.h. Skógræktarinnar, óskar eftir umsögnum um drög að landsáætlun í skógrækt 2021-2031 og um drög að umhverfismati áætlunarinnar.

Tilefni mótunar nýrrar stefnu, landsáætlunar í skógrækt, byggir á 4. gr. laga um skóga og skógrækt nr. 33/2019. Þar segir: Ráðherra gefur út eigi sjaldnar en á fimm ára fresti landsáætlun í skógrækt til tíu ára í senn. Landsáætlunin skal kveða á um stefnu stjórnvalda þar sem fjallað er um stöðu og framtíð skóga í landinu, ásamt tölusettum markmiðum um árangur í skógrækt.

Landsáætlun í skógrækt fjallar um málaflokkinn skógrækt, sem heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðuneytið. Skógræktin er sú ríkisstofnun sem fæst við málaflokkinn. Heildstæð stefna á þeim forsendum sem hér gilda hefur ekki áður verið unnin. Lokaafurð er heildarstefna í skógrækt á Íslandi til næstu 10 ára.

Skiptar skoðanir voru meðal aðila í verkefnisstjórn áætlunarinnar sem leiddi til þess að samið var minnihlutaálit. Það er að finna á sama stað og er einnig hægt að skila inn athugasemdum um það.

Nánari upplýsingar og skjöl til umsagnar er að finna á heimasíðu Skógræktarinnar, sjá: https://www.skogur.is/is/nyskograekt/landsaaetlun-i-skograekt/landsaaetlun-i-skograekt/drog-ad-landsaaetlun-i-skograekt-2021-2025

Umsagnarfrestur er til 18. júní 2021.
Frestað.

4.Ákall til sveitarfélaga um að taka Bonn-áskoruninni - 2021050046

Lagður fram tölvupóstur Péturs Halldórssonar, f.h. Skógræktarinnar og Landgræðslunnar, dags. 10. maí 2021, ásamt fylgigögnum, þar sem skorað er á sveitarfélög að taka Bonn-áskoruninni, sem er alþjóðlegt átak um útbreiðslu skóga.
Bæjarráð vísaði erindinu til umhverfis- og framkvæmdanefndar á 1153. fundi sínum sem fram fór þann 17. maí 2021.
Frestað.

5.Framkvæmdaáætlun 2022 til 2032 - 2021040094

Lögð fram drög fjárfestingaráætlun 2022-2032 til umræðna.
Frestað.

Fundi slitið - kl. 10:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?