Skipulags- og mannvirkjanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
471. fundur 08. febrúar 2017 kl. 08:00 - 10:20 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Sigurður Jón Hreinsson formaður
  • Magni Hreinn Jónsson varaformaður
  • Sigurður Mar Óskarsson aðalmaður
  • Lína Björg Tryggvadóttir aðalmaður
  • Inga María Guðmundsdóttir varamaður
  • Gunnar Jónsson varamaður
  • Ingólfur Hallgrímur Þorleifsson varamaður
  • Hildur Elísabet Pétursdóttir varamaður
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
  • Jón Sigmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Inga Steinunn Ólafsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Jón Kristinn Helgason varamaður
  • Barði Önundarson áheyrnarfulltrúi
  • Hálfdán Bjarki Hálfdánsson varamaður
  • Guðfinna M Hreiðarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Ralf Trylla umhverfisfulltrúi
  • Þorbjörn Jóhann Sveinsson Starfsmaður Ísafjarðarbæjar
  • Brynjar Þór Jónasson sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs
  • Axel Rodriguez Överby skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Axel Rodriguez Överby Skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Stofnun Hollvinafélags Bæjarbryggjunnar á Ísafirði - 2016080011

Hollvinafélag bæjarbryggjunar á Ísafirði var stofnað 02.07.2016 tilgangur félagsins er að stuðla að byggingu nýrrar bæjarbryggju á Ísafirði, sem reist yrði með hliðsjón af þeirri gömlu sem rifin var. Hollvinafélag nýrrar bæjarbryggju óskar eftir afstöðu bæjaryfirvalda til erindisins, jafnframt að málið fái eðlilegt brautargengi innan stjórnkerfis bæjarins.



Skipulags- og mannvirkjanefnd tekur jákvætt í erindið og leggur til að þessi hugmynd verði skoðuð með tilliti til niðurstöðu skýrslu pollnefndar og væntanlegrar deiliskipulagsvinnu á svæðinu.

2.3X óskar eftir óverulegri aðalskipulagsbreytingu - 2016120008

3X Technology óskar eftir því við Ísafjarðarbæ skv. bréfi dags. 05.12.2016, að meðfylgjandi tillaga frá Verkís að óverulegri breytingu aðalskipulags Ísafjarðarbæjar, fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um óverulega breytingu. Tillagan felur í sér minni háttar breytingu á þéttbýlisuppdrætti gildandi aðalskipulags en greinargerð skipulagsins helst óbreytt.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja meðfylgjandi tillögu og heimila málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um óverulega breytingu.

3.Umsókn um stöðuleyfi fyrir matarvagn á Silfurtorgi - 2017010075

Sunna Jökulsdóttir sækir um stöðuleyfi fyrir matarvagn á Silfurtorgi frá maí mánuði fram í október. Hjálagt er umsókn og uppdráttur.
Skipulags- og mannvirkjanefnd tekur jákvætt í erindið og felur tæknideild að óska eftir frekari gögnum.

4.Sjókvíaeldi Arctic Sea Farm í Ísafjarðardjúpi - 2017010103

Á 961. fundi bæjarráðs var lagt fram bréf Hólmfríðar Bjarnadóttur, f.h. Skipulagsstofnunar, dagsett 23. janúar sl., þar sem óskað er eftir umsögn Ísafjarðarbæjar um tillögu að matsáætlun um 7.600 tonna framleiðsluaukningu í laxeldi Arctic Sea Farm í Ísafjarðardjúpi. Óskað er eftir að umsögnin berist fyrir 8. febrúar nk. Bæjarráð vísaði beiðninni til skipulags- og mannvirkjanefndar og hafnarstjórnar.
Skipulags- og mannvirkjanefnd tekur undir bókun hafnarstjórnar frá fundi nr. 189 þann 07.02.2017 þar sem eftirfarandi kemur fram; "Hafnarstjórn getur ekki fallist á að eldiskvíar verði staðsettar á því svæði út af Arnarnesi (Skutulsfirði) sem lagt er til í erindi þessu vegna þess að staðsetning eldiskvía á þessu svæði skerðir aðkomu stærri skipa að fjarðarmynni Skutulsfjarðar og þrengir athafnasvæði skipa"
Nefndin ítrekar enn og aftur að afleitt sé að enga stefnumörkun stjórnvalda sé að finna um sjókvíaeldi á Vestfjörðum, fremur en annars staðar á landinu. Óheppilegt er að veita leyfi þar sem burðarþol Ísafjarðardjúps liggur ekki fyrir og samlegðaráhrif eldis á svæðinu gagnvart lífríkinu eru ekki ljós. Því verður að telja það forgangsatriði að klára rannsóknir á burðarþoli Ísafjarðardjúps. Að frumkvæði sveitarfélaga á Vestfjörðum og Fjórðungssambands var unnin nýtingaráætlun fyrir Arnarfjörð og er það mjög miður að ríkisvaldið hafi ekki séð ástæðu til að samsvarandi vinna fari fram á strandsvæði Ísafjarðardjúps, því í þessu tilfelli hefði slík áætlun verið til mikilla bóta. Skipulags og mannvirkjanefnd vill því ítreka þá skoðun sína að æskilegt er að sveitarfélög ráði skipulagi strandsjávar út að 1 sjómílu frá grunnlínu. Skipulags- og mannvirkjanefnd ítrekar einnig þá skoðun sína að æskilegt er að sveitarfélög ráði skipulagi strandsjávar út að 1 sjómílu frá grunnlínu og hafi með því heimild til gjaldtöku af þeim aðilum sem nýta svæðið.
Nefndin gerir að öðru leiti ekki athugasemd við framkomna tillögu að matsáætlun.

5.Umsókn um Stöðuleyfi - Gunnar Sæmundsson - 2016120003

Gunnar Sæmundsson leggur fram umsókn um stöðuleyfi fyrir 40 feta gám á hafnarkanti til móts við Edinborgarhús. Með umsókn fylgir loftmynd sem markar staðsetningu nánar.
Skipulags- mannvirkjanefnd frestar erindi.

6.Sæborg í Aðalvík - stofnun þriggja lóða - 2016010020

Lagður fram tölvupóstur Erlings Ásgeirssonar, f.h. landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps frá 8.júní 2016 ásamt afriti af bréfi Erlings Ásgeirssonar, f.h. landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps dags. 24. mai 2016 til Umhverfisstofnunar.
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir fundarbeiðni.

7.Engidalur - Staðfesting landamerkja - 2017020019

Inga Daníelsdóttir óskar eftir þvi við skipulagsyfirvöld Ísafjarðarbæjar f.h. landeigenda jarðarinnar Fossa í Engidal, Skutulsfirði landnr. 137998 að landamerki jarðarinnar verði staðfest. Framlögð eru eftirfarandi gögn, hnitsettur uppdráttur frá Teiknistofunni Eik dags. 09.12.2016, undirritaður af landeigendum jarðanna Efri og Neðri Engidals, Breiðumýrar og Orkubúi Vestfjarða. Yfirlýsingar um landamerki og eignamörk dagsett feb. 2015 og 11. desember 2016 ásamt afsalsbréfum frá 14.apríl 1945, kaup- og afsalsbréf frá 10.júlí 1948, afsal dags. 7. apríl 1953.
Byggingafulltrúa falið að ganga frá málinu.

8.Æfingaturn - umsókn um stöðuleyfi - 2015090074

Einar Birkir Sveinbjörnsson sækir um stöðuleyfi f.h. Unglingadeildarinnar Hafstjörnunnar skv. umsókn og meðfylgjandi uppdrætti. Sótt er um stöðuleyfi fyrir æfingaturn þar sem fjallabjörgun, sig og klifur eru æfð. Tilgreindar eru tvær staðsetningar á meðfylgjandi deiliskipulagsuppdrætti.
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir úthlutun stöðuleyfis fyrir æfingaturnn, nánari staðsetning í samráði við byggingafulltrúa. Einnig er bent á að stöðuleyfi gildir í eitt ár.

9.Dýrafjarðargöng - Umsókn um framkvæmdaleyfi - 2016120021

Guðmundur Rafn Kristjánsson, f.h. Vegagerðarinnar, sækir um framkvæmdarleyfi fyrir jarðgöng milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar í Ísafjarðarbæ skv. umsókn dags. 16. janúar 2017. Sótt er um framkvæmdaleyfi til Ísafjarðarbæjar vegna Dýrafjarðarganga, á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi. Framkvæmdin er matsskyld skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og er matsskýrsla og álit Skipulagsstofnunar fyrirliggjandi og meðfylgjandi.
Sótt er um framkvæmdina á grundvelli Aðalskipulags Ísafjarðarbæjar 2008-2020 og deiliskipulags í landi Dranga, í Dýrafirði og Rauðsstaða í Arnarfirði, þar sem gert er ráð fyrir jarðgöngum. Meðfylgjandi eru eftirfarandi gögn vegna framkvæmdarleyfisumsóknar.
1. Afstöðumynd
2. Hönnunargögn, jarðgöng, vegir og brýr
3. Fylgiskjal 3 lýsing á framkvæmd, upplýsingar úr útboðslýsingu.
4. Umhverfismat og álit Skipulagsstofnunar.
Óskað er eftir leyfi fyrir framkvæmdinni í heild sinni eins og henni er lýst í meðfylgjandi gögnum.
Vegagerðin hefur sótt um leyfi til Fiskistofu vegna efnistöku úr Hófsá, vegna byggingar brúa á Mjólká og Hofsá og ræsis í Kjaransstaðaá.
Skipulags- og mannvirkjanefnd frestar erindi.

Sigurður Mar Óskarsson vék af fundi við afgreiðslu.

Fundi slitið - kl. 10:20.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?