Skipulags- og mannvirkjanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
676. fundur 21. júlí 2026 kl. 13:30 - 15:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Anton Helgi Guðjónsson varaformaður
  • Tinna Rún Snorradóttir formaður
  • Þóra Marý Arnórsdóttir aðalmaður
  • Helgi Karl Guðmundsson aðalmaður
  • Jóhann Bæring Gunnarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Axel Rodriguez Överby sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs
  • Helga Þuríður Magnúsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Helga Þuríður Magnúsdóttir verkefnastjóri
Dagskrá

1.Strenglagning - Sauðanes - 2026030056

Lögð fram umsókn sem barst í tölvupósti 1. júlí 2026, frá Birni Davíðssyni, fyrir hönd Snerpu ehf., um framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara og 11 kV jarðstrengs á svæðinu við Sauðanes og Botnsdal.

Fyrirhuguð framkvæmd felur í sér strenglagningu, að mestu með plægingu, á um 16 km langri lagnaleið frá Klofningsdal að Sauðanesi, niður Staðardal og út í Súgandafjörð.
Skipulags- og mannvirkjanefnd felur starfandi skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram, í samræmi við a lið 1. gr. viðauka 8 við samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar.

2.Fjarskiptabúnaður Sauðanes - 2026070097

Lögð fram umsókn frá Landhelgisgæslu Íslands, dags. 15. júlí 2026 þar sem óskað er heimildar sveitarfélagsins að staðsetja fjarskiptahýsi á Sauðanesi.
Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemdir við staðsetningu fjarskiptahýsis á Sauðanesi í landi sveitarfélagsins en hafa þarf samráð við aðliggjandi landeiganda sem er Ríkissjóður Íslands þar sem ekki er hægt að greina á hvoru landinu hýsið verður byggt, miðað við framlögð gögn.

3.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 - 2025060065

Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs dags. 16. júlí 2026, vegna viðauka við samning vegna vinnslu aðalskipulags.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að gert verði ráð fyrir fjármunum í fjárhagsáætlun 2027 vegna þessa.

4.Húsnæðisáætlun 2026 - 2025110181

Lögð fram húsnæðisáætlun Ísafjarðarbæjar, fyrir árið 2026.
Gera þarf lagfæringar á lykiltölum í húsnæðisáætlun þannig að hún sé í samræmi við aðrar tölur.
Starfsmanni nefndar er falið að lagfæra og skila inn gögnum.

5.Gjaldskrár 2027 - 2026030239

Lagðar fram gjaldskrár sem heyra undir skipulags- og mannvirkjanefnd, til fyrri umræðu.
Almenn umræða um gjaldskrár. Umræðu verður haldið áfram á næstu fundum.

6.Hvítisandur. Ósk um umsögn vegna beiðni um undanþágu frá skipulagsreglugerð - 2025110057

Á 561. fundi bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar 20. nóvember 2025 var ekki gerð athugasemd við að ráðherra veiti undanþágu vegna ákvæði skipulagsreglugerðar um fjarlægð byggingarreitar frá vötnum, ám eða sjó vegna byggingar aðstöðu til sjó- og gufubaða í fjöruborði í landi Þórustaða í Önundarfirði.

Nú er lagður fram tölvupóstur frá Kristínu Söndru Karlsdóttur hjá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, dags. 8. júlí 2026, þar sem ráðuneytið óskar eftir upplýsingum frá Ísafjarðarbæ hvort ástæða þyki til að veita nýja umsögn í málinu í ljósi uppfærðrar beiðni Hvítasands ehf. Jafnframt er lögð fram umsögn Skipulagsstofnunar, dags. 21. nóvember 2025.
Skipulags- og mannvirkjanefnd telur ekki ástæðu til að skila inn nýrri umsögn við uppfærðri beiðni Hvítasands ehf.

7.Umsagnarbeiðni HMS. Skipting Eyrarhlíðar í Dýrafirði í tvö eldissvæði, 856. mál - 2026070100

Lögð fram umsagnarbeiðni frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun vegna máls um skiptingu Eyrarhlíðar í Dýrafirði í tvö eldissvæði (Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu), dags. 9. júlí 2026.

Arctic Sea Farm áformar að skipta eldissvæðinu Eyrarhlíð í Dýrafirði í tvö eldissvæði, þ.e. Eyrarhlíð I og Eyrarhlíð II. Svæðið er í dag eitt eldissvæði en er þó rekið sem tvær aðskildar eldiseiningar. Með breytingunni fær hvor eining sinn eigin hvíldartíma, en bæði svæðin yrðu þó ávallt hvíld samtímis í minnst 30 daga. Eldissvæði á eldisleyfum Arctic Sea Farm í Dýrafirði yrðu því fimm í stað fjögurra: Gemlufall (A), Haukadalsbót (B), Eyrarhlíð I (C), Eyrarhlíð II (D) og Skagahlíð (E).

Umsagnarfrestur er til og með 6. ágúst 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemdir við skiptingu eldissvæða við Eyrarhlíð í Dýrafirði í tvö svæði.

8.Breiðadalslína 1 um Dýrafjarðargöng. Ósk um aðalskipulagsbreytingu - 2026020060

Lagt fram minnisblað, unnið af Verkís ehf. dags. 27. maí 2026, með samantekt umsagna og athugasemda við lýsingu breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 vegna Breiðadalslínu 1 og yfirlit yfir málsmeðferð, svör og viðbrögð við þeim vegna skipulagsmálsins sem kynnt var í Skipulagsgátt, sjá mál nr. 222/2026 Breiðadalslína 1 um Dýrafjarðargöng.

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti þann 19. febrúar 2026 að auglýsa skipulagslýsingu vegna breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 vegna Breiðadalslínu 1, skv. 30. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagslýsing var kynnt frá 24. febrúar og til og með 17. mars 2026 í Skipulagsgátt og á vef Ísafjarðarbæjar.

Jafnframt er lögð fram til kynningar, vinnslutillaga breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 vegna Breiðadalslínu 1, greinargerð með uppdrætti unnin af ráðgjöfum Verkís ehf. dags. 8. maí 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd óskar eftir samtali við framkvæmdaaðila á næsta fundi nefndarinnar, þann 11. ágúst 2026.

9.Hraðhleðslugámur - Umsókn um stöðuleyfi - 2026060100

Lögð er fram umsókn Ingu0 Hrundar Arnardóttur, f.h. Orkunar Is, um stöðuleyfi á gám sem hýsir hraðhleðslustöðvar á lóðinni Skeið 1 á Ísafirði. Sótt er um leyfi til að hafa stöðvarnar á svæðinu frá 1. september 2026 til og með 31. ágúst 2027. Jafnframt eru lagðar fram upplýsingar um staðsetningu hraðhleðslustöðva ásamt samþykki Eramus eignarhaldsfélags ehf.

Þar sem um er að ræða lóð í eigu Ísafjarðarbæjar er óskað eftir áliti skipulags- og mannvirkjanefndar.
Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemd og felur byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.

10.Grænigarður - Fyrirspurn um breytingar á innra og ytra byrði - 2023020096

Lagður fram tölvupóstur frá Mörthu Kristínu Pálmadóttur, f.h. Vestfirskra Verktaka, dags. 22. júní 2026, þar sem eru gerð grein fyrir fyrirhugaðri notkun á húsinu við Grænagarð L138982, áður netagerð, við Skutulsfjarðarbraut.

Jafnframt lagðar fram rýmismyndir af nýjum matshlutum 0101 til 0107, merkt A til og með J á afstöðumynd unnið af EFLU, dags. 27. desember 2022
Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemdir við breytingar á húsnæði og felur byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.

11.Botnsvirkjun í Dýrafirði, 257. mál. Kynning matsáætlunar - 2026030267

Lögð fram til kynningar tilkynning frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun um álit stofnunarinnar um matsáætlun Botnsorku ehf. vegna Botnsvirkjunar í Dýrafirði, dags. 9. júlí 2026, 257. mál í Skipulagsgátt.
Lagt fram til kynningar.

12.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014

Lagt fram til kynningar erindi félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, dags. 13. júlí 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 131/2026, "Áform um lagasetningu - Frumvarp um breytingu á lögum um mannvirki nr. 160/2010 (einföldun byggingarreglugerðar og breytt byggingareftirlit)". Umsagnarfrestur er til og með 21. ágúst 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd óskar eftir upplýsingum frá byggingarfulltrúa.

13.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014

Lagt fram til kynningar erindi félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, dags. 13. júlí 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 130/2026, "Áform um lagasetningu - Frumvarp um breytingu á skipulagslögum nr. 123/2010 (ýmsar breytingar)". Umsagnarfrestur er til og með 21. ágúst 2026.
Lagt fram til kynningar.

14.Úrbætur í Tunguhverfi - erindi frá íbúum - 2026070081

Á 1375. fundi bæjarráðs þann 16. júlí 2026 var tekið fyrir erindi íbúa í Tunguhverfi varðandi aðstöðu gangandi vegfarenda og leikssvæði á svæðinu. Bæjarráð vísaði málinu til umfjöllunar í skipulags- og mannvirkjanefnd og umhverfis- og framkvæmdanefnd og fól bæjarstjóra að koma í framkvæmd þeim atriðum í bréfinu sem hægt var að bregðast við fljótt.
Er nú málið lagt fyrir skipulags- og mannvirkjanefnd til umfjöllunar.
Skipulags- og mannvirkjanefnd þakkar fyrir erindið og tekur undir athugasemdir íbúa.

Í vinnslu á nýju deiliskipulagi á svæði Í2 á Tunguskeiði er gert ráð fyrir leik- og dvalarsvæðum, einnig er í skoðun framtíðartenging yfir Tunguá og því verður tekið tillit til athugasemda íbúa í þeirri vinnu.

Skipulags- og mannvirkjanefnd hvetur umhverfis- og framkvæmdanefnd að skoða lokun á umferð vélknúinna ökutækja yfir brúnna.

15.Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 93 - 2606003F

Lögð fram til kynningar fundargerð 93. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa en fundur var haldinn 30. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?