Skipulags- og mannvirkjanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Fræðsla fyrir kjörna fulltrúa 2026 - 2026060025
Bryndís Ósk Jónsdóttir, bæjarritari, mætir til fundar með fræðslu fyrir nýkjörna fulltrúa.
Kynnt.
Bryndís Ósk yfirgaf fund kl. 13:51.
Gestir
- Bryndís Ósk Jónsdóttir, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs - mæting: 13:30
2.Hverfisráð - fundargerðir 2026 - 2026020010
Á 1370. fundi bæjarráðs þann 11. júní 2026 var lögð fram til kynningar fundargerð Hverfisráðs Dýrafjarðar frá 2. júní 2026.
Bæjarráð fól bæjarstjóra að hefja vinnu við að skýra og staðla verkferla í samskiptum við hverfisráð og vísaði fundargerð Hverfisráðs Dýrafjarðar til umfjöllunar í umhverfis- og framkvæmdanefnd og skipulags- og mannvirkjanefnd.

Skipulags- og mannvirkjanefnd þakkar Hverfisráði Dýrafjarðar fyrir greinargóða fundargerð og felur starfsmanni að taka saman minnisblað og leggja fyrir á næsta fundi nefndar.
3.Deiliskipulagsbreyting Eyrarinnar, fyrir Eyrarskjól - 2026060070
Lögð fram drög að deiliskipulagsbreytingu Eyrarinnar, fyrir færanlega stofu við Eyrarskjól við Eyrargötu á Ísafirði, unnið af ráðgjafa Verkís ehf. fyrir Ísafjarðarbæ, dags. 3. júní 2026.
Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi Eyrin á Ísafirði sem samþykkt var 16. október 1997 og tók gildi árið 1998. Breyting er varðar Eyrarskjól tók gildi 18. febrúar 2019. Sú breytingin fólst í að lóð Eyrarskjóls (Eyrargata 1) var stækkuð til norðvesturs.
Deiliskipulagsbreytingin felst í því að ný 344 fm lóð er afmörkuð milli Eyrargötu 1 og 3, Eyrargata 1a. Markmið skipulagsbreytingarinnar er að skapa svigrúm fyrir tímabundna stækkun leikskólans Eyrarskjóls þar til varanlegar lausnir um aukið rými liggja fyrir.

Skipulags- og mannvirkjanefnd felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillögu að breytingum á deiliskipulagi Eyrarinnar, vegna færanlegra kennslustofu við Eyrargötu, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur áherslu á að tekið verði tillit til umferðaröryggis á svæðinu.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur áherslu á að tekið verði tillit til umferðaröryggis á svæðinu.
4.Ósk um lóð fyrir sjálfsafgreiðslustöð - 2026020083
Á 671. fundi skipulags- og mannvirkjanefnd Ísafjarðarbæjar, þann 30. apríl 2026 var eftirfarandi tekið fyrir:
Lagður fram tölvupóstur frá Sigríði Magnúsdóttur f.h. Atlantsolíu, kt. 590602-3610, dags. 24. apríl 2026, þar sem fyrirtækið sækir um lóð á Stekkjarnesi fyrir sjálfsafgreiðslustöð.
Jafnframt er lagt fram minnisblað Atlantsolíu út frá staðarvalskostum. Niðurstaðan að Stekkjarnes væri áhugaverðasti kosturinn og kom helst til greina fyrir starfsemi sjálfsafgreiðslustöðvarinnar þrátt fyrir mögulega áhættu vegna snjóflóða. Bókun nefndarinnar: Skipulags- og mannvirkjanefnd óskar eftir umsögn Veðurstofu Íslands og Vegagerðarinnar.
Nú er lögð fram umsögn Veðurstofu Íslands vegna lóðarumsóknar Atlantsolíu á Stekkjarnesi á Ísafirði, dags. 20. maí 2026.

Skipulags- og mannvirkjanefnd getur ekki fallist á umrædda staðsetningu með hliðsjón af umsögn Veðurstofu. Umrædd lóð er á hættusvæði C vegna snjóflóða og er á rýmingarreit nr. 9 sem er einn af þeim rýmingarreitum sem er rýmdur hvað oftast á landinu. Einnig er svæðið innan 30 m veghelgunarsvæðis Vegagerðarinnar.
Nefndin tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsfulltrúa að finna hentuga staðsetningu í samráði við umsækjanda.
Nefndin tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsfulltrúa að finna hentuga staðsetningu í samráði við umsækjanda.
5.Grænigarður - Fyrirspurn um breytingar á innra og ytra byrði - 2023020096
Á 672. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar þann 13. maí 2026 var var lögð fram fyrirspurn frá Garðari Sigurgeirssyni f.h. Vestfirskra Verktaka vegna breyttrar notkunar á Grænagarði. Þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið og að húsnæðið er innan snjóflóðalínu óskaði byggingarfulltrúi eftir afstöðu nefndarinnar.
"Skipulags- og mannvirkjanefnd getur ekki tekið afstöðu til erindis fyrr en það liggur fyrir hver notkun á rýmunum verður og áætlaður fjöldi starfsmanna dags daglega með hliðsjón af því að mannvirkið er innan hættusvæðis C, nefndin óskar jafnframt eftir umsögn Veðurstofu Íslands".
Nú er lögð fram umsögn Veðurstofu Íslands, dags. 9. júní 2026.

Lögð fram til kynningar umsögn Veðurstofu.
Nefndin ítrekar fyrri bókun um að ekki verður tekin afstaða til erindis fyrr en það liggur fyrir hver notkun á rýmunum verður og áætlaður fjöldi starfsmanna dags daglega með hliðsjón af því að mannvirkið er innan hættusvæðis C.

6.Hvítisandur, Önundarfirði. Umsókn um lóðarstofnun úr Þórustöðum L141035 - 2023100060
Lögð fram merkjalýsing Þórustaða í Önundarfirði L141035, fnr. 212-6245, vegna landskipta frá jörðinni undir nýja lóðarspildu, Hvítasand, í fjörunni vestan við Holtsbryggju, unnin af Landnotum ehf./Geoform ehf. 7. apríl 2026, skv. lögum um skráningu, merkja og mati fasteigna nr. 6/2021 og reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024. Ný lóðarspilda mælist eftir hnitsetningu 20.446.3 fm en jörðin Þórustaðir er enn óskráð að stærð.
Lóðin sem verður stofnuð "Hvítisandur" er staðsett vestan við Holtsbryggju en landeigendur jarðanna hafa stundum, óformlega talað um bryggjuna í markalínu, en farið var í sáttamiðlun fyrir allnokkrum árum þar sem sú tillaga var lögð fram. Þórustaðalandeigendur skrifuðu ekki upp á þá tillögu þar sem þeir telja línuna vera austar eða eins og áætlun eignamarka HMS sýnir.
Jafnframt er lögð fram umsókn um stofnun nýrrar fasteigna, F-550 dags. 8. febrúar 2022.

Skipulags- og mannvirkjanefnd heimilar stofnun lóðarinnar Hvítasands innan jarðarinnar Þórustaða í Önundarfirði á grundvelli merkjalýsingar dags. 7. apríl 2026.
7.Frístundabyggð í aðalskipulagi. Núpur í Dýrafirði. - 2024110028
Lagt fram erindi, dags. 29. maí 2026, frá Ólöfu Guðnýju Valdimarsdóttur, f.h. landeigenda Núpsjarðarinnar í Dýrafirði, með ósk um heimild fyrir 9 nýjum frístundahúsum ásamt þjónustuhúsi innan jarðarinnar. Eitt frístundahús er á svæðinu nú þegar, samtals tíu frístundahús innan svæðisins.
Skipulags- og mannvirkjanefnd vísar erindi inn í vinnu við endurskoðun aðalskipulags.
8.Mastur og tækjahús Þingeyrarhöfn - 2026040263
Á 270. fundi hafnarstjórnar þann 30. apríl 2026 var lagt fram erindi frá Steindóri Gunnari Magnússyni f.h. Mílu dags. 28. apríl 2026.
Um er að ræða leigu á lóð (aðstöðu) á Þingeyrarhöfn fyrir 16 metra stálmastur/stálstaur sem er u.þ.b. 60 cm í þvermál við undirstöðu og mjókkar niður í u.þ.b. 30 cm í topp. Og tækjahús sem er 3,0 X 3,0 metrar, sjá mynd af samskonar húsi.
Bókun hafnarstjórnar: Hafnarstjórn leggur til við skipulags- og mannvirkjanefnd að lóð verði stofnuð undir farsímamastur og tækjahús í samræmi við umsókn.

Skipulags- og mannvirkjanefnd felur starfsmanni nefndar að stofna lóð á hafnarsvæði á Þingeyri í samræmi við umsókn.
9.Beiðni um aðlögun aðalskipulags skólahúsnæðis - 2026060068
Lögð fram ósk um aðlögun að aðalskipulagi vegna nýs skólahúsnæðis Lýðskólans á Flateyri við Oddaveg 11, frá formanni stjórnar Lýðskólans, Peter Weiss, dags. 1. júní 2026.
Beiðnin snýr að því á að svæðið í kring um húsið verði breytt í aðalskipulagi svo það rúmi þjónustustofnanir á borð við Lýðskólann. Verið er að hefja undirbúningsvinnu/teikningar varðandi nauðsynlegar breytingar innanhúss. Til stendur að flytja kennslu þangað sem fyrst.
Beiðnin snýr að því á að svæðið í kring um húsið verði breytt í aðalskipulagi svo það rúmi þjónustustofnanir á borð við Lýðskólann. Verið er að hefja undirbúningsvinnu/teikningar varðandi nauðsynlegar breytingar innanhúss. Til stendur að flytja kennslu þangað sem fyrst.
Skipulags- og mannvirkjanefnd vísar erindi inn í vinnu við endurskoðun aðalskipulags.
10.Umsagnarbeiðni. Breyting á Breiðdalslínu 1 í Dýrafirði - 2026060069
Lögð fram til kynningar, umsagnarbeiðni til Ísafjarðarbæjar frá Skipulagsstofnun úr skipulagsgátt, dags. 13. maí 2026, vegna tilkynningar um framkvæmd (Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu), Breyting á Breiðdalslínu 1 í Dýrafirði, Ísafjarðarbæ, mál nr. 0587/2026.
Framkvæmdin felur í sér lagningu um 4,23 km 132 kV loftlínu við sunnanverðan Dýrafjörð frá Dýrafjarðargöngum að Dýrafjarðarbrú og er liður í styrkingu flutningskerfisins á Vestfjörðum.
Framkvæmdin felst m.a. í slóðagerð, efnistöku, vinnu við plön, undirstöður og stagfestur, reisingu mastra og strengingu leiðara. Einnig er um að ræða sköpun aðstöðu fyrir starfsmenn á verktíma og frágang svæða í verklok. Afla þarf burðarhæfs fyllingarefnis fyrir plön og vegslóða og áætluð heildar efnisþörf vegna þeirra framkvæmda er alls um 18.300 m3.
Kynningartími er frá 12. maí 2026 til og með 10. júní 2026.

Skipulags- og mannvirkjanefnd felur skipulagsfulltrúa að móta umsögn og leggja fram á næsta fundi nefndar.
11.Engjavegur 18, Ísafirði. Umsókn um stækkun lóðar - 2026050138
Lögð fram umsókn frá þinglýstum eigendum fasteignar við Engjaveg 18 á Ísafirði um stækkun lóðar að ofanverðu, að þinglýstum lóðarmörkum við Urðarveg 23 og Urðarveg 25, dags. 20. maí 2026. Jafnframt er lagt fram mæliblað tæknideildar, dags. 16. júní 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir stækkun lóðar við Engjaveg 18 til samræmis við mæliblað dags. 16. júní 2026.
12.Fjarðarstræti 11 - Umfangsflokkur 1 - 2026030221
Á 669. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar þann 31. mars 2026, var lögð fram fyrirspurn Jóhanns Birkis Helgasonar vegna fyrirhugaðra framkvæmda á húsinu en óskað er eftir því að fá að hækka húsið um eina hæð. Jafnframt eru lögð fram drög að aðaluppdrætti sem fullkláraður verður ef vel verður tekið í málið. Óskað var eftir afstöðu skipulags- og mannvirkjanefndar vegna málsins.
Skipulags- og mannvirkjanefnd bókaði að umsækjanda bæri að óska eftir því að grenndarkynna áformin, skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og mannvirkjanefnd bókaði að umsækjanda bæri að óska eftir því að grenndarkynna áformin, skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsið við Fjarðarstræti 11 á Ísafirði er byggt árið 1934 í fúnkísstíl og fellur því beint undir lög um menningarminjar. Þar sem það er reist fyrir 1940 er skylt að leita umsagnar Minjastofnunar Íslands áður en ráðist er í hvers kyns breytingar á ytra útliti þess. Einnig er í gildi á umræddu svæði, Verndarsvæði í byggð, á Eyrinni.
Skipulags- og mannvirkjanefnd óskar eftir umsögn Minjastofnunar.
Skipulags- og mannvirkjanefnd óskar eftir umsögn Minjastofnunar.
13.Umsagnir Minjastofnunar í skipulags- og framkvæmdamálum - 2026060145
Lagt fram erindi frá Einari Ísakssyni hjá Minjastofnun, dags. 16. júní 2026 vegna skipulagsmála á Vestfjörðum, þar sem stofnunin vill árétta og biðla til yfirvalda á Vestfjörðum að gleyma ekki að hafa Minjastofnun með í ráðum þegar kemur að skipulagsmálum innan sveitarfélaganna. Þegar þessi mál rata í réttan farveg á réttum tíma eru þau yfirleitt fljótafgreidd hjá stofnuninni og vandkvæðalaus.
Lagt fram til kynningar.
14.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Lögð fram til kynningar, umsagnarbeiðni úr samráðgátt stjórnvalda, dags. 3. júní 2026, með drögum að aðgerðaáætlun stefnu íslenskra stjórnvalda um líffræðilega fjölbreytni 2026-2030, 96. mál.
Stefna íslenskra stjórnvalda um vernd líffræðilegrar fjölbreytni var gefin út af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í byrjun árs 2026. Stefnan byggir á sex leiðarljósum sem draga fram lykiláherslur stefnunnar og mynda grunn að þeim aðgerðum sem stjórnvöld hyggjast fara í til að auka vernd líffræðilegrar fjölbreytni.
Umsagnarfrestur er til og með 24. júní 2026.

Fundi slitið - kl. 15:52.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?