Skipulags- og mannvirkjanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 - 2025060065
Lögð fram drög að köflum 1-11 ásamt ákvæðum og vinnuvefsjá af uppdrætti aðalskipulags til rýningar og umræðna.
2.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2025-2050 - 2025060065
Þriðjudaginn 28. apríl 2026 var haldið opið hús til að ræða framtíðartaðsetningu fyrir matjurtagarða innan þéttbýlis Ísafjarðar.
Markmið opna hússins var að fá hugmyndir og sjónarmið íbúa um hvar hentað geti að gera ráð fyrir matjurtagörðum til framtíðar og hvernig slíkt geti fallið að byggð og mannlífi ásamt því að auka sjálfbærni.
Nú er lagt fram til kynningar minnisblað Erlu Margrétar Gunnarsdóttur, dags. 12. maí 2026, um opna húsið og framvindu mála.

Lagt fram til kynningar.
Skipulags- og mannvirkjanefnd þakkar fyrir minnisblað frá skipulagsfulltrúa og leggur til að haldið verði áfram með þessa vinnu inn í aðalskipulag.
Skipulags- og mannvirkjanefnd þakkar fyrir minnisblað frá skipulagsfulltrúa og leggur til að haldið verði áfram með þessa vinnu inn í aðalskipulag.
3.Hvítisandur, Önundarfirði. Nýtt deiliskipulag í landi Þórustaða - 2026030226
Mánudaginn 4. maí 2026 var haldið opið hús þar sem vinnslutillögur að skipulagi Hvítasands voru kynntar. Nú eru fundarpunktar lagðir fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Skipulags- og mannvirkjanefnd minnir á að enn er opið fyrir umsagnir/athugasemdir eða til 15. maí 2026 í gegnum skipulagsgáttina.
Skipulags- og mannvirkjanefnd minnir á að enn er opið fyrir umsagnir/athugasemdir eða til 15. maí 2026 í gegnum skipulagsgáttina.
4.Miðbær Ísafjarðar. Deiliskipulag - 2023050086
Lögð fram til kynningar, greinargerð: Miðbær Ísafjarðar drög að deiliskipulagi, dags. 8. maí 2026, unnið af ráðgjöfum Verkís ehf. fyrir Ísafjarðarbæ.
Drög að skipulagi Miðbæjar Ísafjarðar ásamt greinargerð lögð fram til kynningar.
Skipulags og mannvirkjanefnd telur að þessi drög svari þeim markmiðum sem lagt var upp með í upphafi verkefnisins. Skipulagið mun fjölga íbúðum um rúmlega 130, auka aðgengi að Pollinum, bæta umferðaröryggi um Pollgötu og fjölga grænum svæðum án þess að fækka bílastæðum.
Skipulags- og mannvirkjanenfnd hvetur íbúa til að kynna sér þessi drög og senda inn ábendingar.

5.Húseiningar - Efnisveitan - 2026030303
Lagt fram minnisblað Verkís ehf. dags. 12. maí 2026, vegna skipulagsbreytinga með hliðsjón af færanlegum kennslustofum við annarsvegar Sólborg og hinsvegar Eyrarskjól.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til að bætt verði inn heimild fyrir færanlega skólastofu, inn á lóð Sólborgar, í þá deiliskipulagstillögu sem unnið er að og til stendur að auglýsa.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til að hefja vinnu við breytingar deiliskipulagi Eyrarinnar, þar sem ný tímabundin lóð er afmörkuð við Eyrargötu 3 fyrir færanlega skólastofu.
Nefndin áréttar að um er að ræða tímabundin úrræði og felld verða úr gildi með síðari breytingum.

6.Kerfið - A Scale Model of the Solar System - 2025070034
Lagður fram tölvupóstur frá Diego Ragnari Angemi, dags. 7. maí 2026 þar sem óskað eftir samþykki fyrir uppsetningu á sex reikistjarnamerkjum innan Ísafjarðarbæjar, sem hluta af verkefninu Kerfið - varanlegu sólkerfislíkani í réttum hlutföllum sem dreifist um landslag Vestfjarða.
Skipulags- og mannvirkjanefnd heimilar umsækjanda að hefja vinnu á uppsetningu á sex reikistjarnamerkjum innan Ísafjarðarbæjar, sem hluta af verkefninu Kerfið - varanlegu sólkerfislíkani.
Skipulags- og mannvirkjanefnd bendir á að verkefni af þessum toga eru alltaf víkjandi á skipulagi.
Skipulags- og mannvirkjanefnd bendir á að verkefni af þessum toga eru alltaf víkjandi á skipulagi.
7.Grænigarður - Fyrirspurn um breytingar á innra og ytra byrði - 2023020096
Garðar Sigurgeirsson leggur fram fyrirspurn f.h. Vestfirskra Verktaka vegna breyttrar notkunar á Grænagarði. Óskað er eftir því fá að setja 8 nýjar innkeyrsluhurðir á hús ásamt því að hólfa neðri hæð niður á þann hátt að útbúin séu 8 sjálfstæð geymslubil. Eins er óskað eftir því að fá að setja stálstiga niður frá svölum hússins. Jafnframt eru lagðir fram uppdrættir í vinnslu frá Eflu dags. 27. desember 2022.
Þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið og að húsnæðið sé innan snjóflóðalínu er óskað eftir afstöðu nefndarinnar vegna málsins.
Þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið og að húsnæðið sé innan snjóflóðalínu er óskað eftir afstöðu nefndarinnar vegna málsins.
Skipulags- og mannvirkjanefnd getur ekki tekið afstöðu til erindis fyrr en það liggur fyrir hver notkun á rýmunum verður og áætlaður fjöldi starfsmanna dags daglega með hliðsjón af því að mannvirkið er innan hættusvæðis C, nefndin óskar jafnframt eftir umsögn Veðurstofu Íslands.
8.Skipagata 2, Suðureyri. Ósk um stækkun á byggingarreit - 2026040265
Lögð fram ósk frá Einari Ólafssyni, hjá Arkiteo, f.h. Gler og lása ehf. þar sem óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi Suðureyrarmala. Jafnframt er lagður fram uppdráttur dags. 24. apríl 2026.
Fyrirhuguð breyting á deiliskipulagi snýst um að stækka byggingarreit á lóðinni Skipagata 2 á Suðureyri og byggja 28 m2 hús á einni hæð á lóðarmörkum Eyrargötu 12 og Stefnisgötu 1.
Fyrirhuguð breyting á deiliskipulagi snýst um að stækka byggingarreit á lóðinni Skipagata 2 á Suðureyri og byggja 28 m2 hús á einni hæð á lóðarmörkum Eyrargötu 12 og Stefnisgötu 1.
Skipulags- og mannvirkjanefnd heimilar að grenndarkynna áformin, skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, aðliggjandi lóðarhöfum við Eyrargötu 10 og Eyrargötu 12 og Skólagötu 1 á Suðureyri.
Skipulagsnefnd er heimilt að stytta tímabil grenndarkynningar ef þeir sem hagsmuna eiga að gæta, sbr. 1. mgr., hafa lýst skriflega yfir með áritun sinni á kynningargögn áður en fjórar vikur eru liðnar að þeir geri ekki athugasemdir við skipulagstillöguna eða hina leyfisskyldu framkvæmd.
Hafi byggingar- eða framkvæmdaleyfi á grundvelli grenndarkynningar ekki verið gefið út innan eins árs frá afgreiðslu sveitarstjórnar skv. 2. mgr. skal grenndarkynning fara fram að nýju áður en leyfi er veitt.

9.Hafnarstræti 6, Flateyri. Umsókn um lóðarleigusamning - 2026010332
Lögð fram ósk eiganda um endurnýjun á lóðarleigusamningi við Hafnarstræti 6 á Flateyri, dags. 22. janúar 2026.
Jafnframt er lagt fram mæliblað tæknideildar, dags. 24. apríl 2026, þar sem eru mæld upp núverandi stærð lóðar 1.165 fm annars vegar og hins vegar ný lóðarmörk í samræmi við gildandi deiliskipulag Flateyrarodda þar sem er gert ráð fyrir minnkun lóðar, niður í 983 fm.

Skipulags- og mannvirkjanefnd felur sviðsstjóra að ganga frá nýjum lóðarleigusamningi við Hafnarstræti 6, Flateyri í samræmi við gildandi deiliskipulags Flateyrarodda.
10.Brekkugata 32, Þingeyri. Umsókn um lóðarleigusamning - 2026050039
Lögð fram umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi, frá þinglýstum eigendum fasteignar við Brekkugötu 32 á Þingeyri, dags. 5. maí 2026. Jafnframt er lagt fram mæliblað tæknideildar, dags. 12. maí 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd felur sviðsstjóra að ganga frá nýjum lóðarleigusamningi við Brekkugötu 32 í samræmi við mæliblað tæknideildar, dags. 12. maí 2026.
Fundi slitið - kl. 15:30.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?
Skipulags og mannvirkjanefnd leggur til að vinnuvefsjá af uppdrætti aðalskipulags verði aðgengileg á vef Ísafjarðarbæjar. Íbúar eru hvattir til að kynna sér drögin vel og koma með ábendingar í samráðsferlinu.
Skipulags og mannvirkjanefnd fagnar þeim áfanga sem hefur náðst við vinnslu aðalskipulags á þessu kjörtímabili. Vinnsluferli aðalskipulags hefur fylgt þeirri áætlun sem var samþykkt í maí 2025 og samkvæmt henni verður vinnslutillaga auglýst haustið 2026. Skipulags og mannvirkjanefnd þakkar starfsmönnum Umhverfis og eignasviðs fyrir vel unnin störf.