Skipulags- og mannvirkjanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
668. fundur 05. mars 2026 kl. 13:30 - 14:54 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Finney Rakel Árnadóttir varamaður
    Aðalmaður: Guðmundur Ólafsson
  • Anton Helgi Guðjónsson aðalmaður
  • Steinunn Guðný Einarsdóttir aðalmaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir formaður
  • Jóhann Bæring Gunnarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Axel Rodriguez Överby sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs
  • Helga Þuríður Magnúsdóttir verkefnastjóri
  • Erla Margrét Gunnarsdóttir Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði: Helga Þuríður Magnúsdóttir verkefnastjóri
Dagskrá

1.Kerfið - A Scale Model of the Solar System - 2025070034

Lagður fram tölvupóstur frá Diego Ragnari Angemi dags. 27. febrúar 2026, þar sem hann óskar eftir afnot af landi sveitarfélagsins fyrir varanlega innsetningu á listaverkinu Sól.
Skipulags- og mannvirkjanefnd óskar eftir umsögn Vegagerðarinnar með hliðsjón af veghelgunarsvæðis.
Nefndin felur Erlu Margréti Gunnarsdóttur, skipulagsfulltrúa, að afgreiða umsókn m.t.t. umsagnar Vegagerðar.
Skipulags- og mannvirkjanefnd óskar eftir að fá erindið inn að nýju á hönnunarstigi.

2.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2008-2020 - breyting - Eyrarkláfur - 2025100173

Lagðar fram til kynningar, umsagnir og ábendingar sem bárust við vinnslutillögu aðalskipulagsbreytinga vegna Eyrarkláfs.

Vinnslutillagan var kynnt frá 13. janúar til og með 10. febrúar 2026.
Jafnframt er lagt fram minnisblað Erlu Margréti Gunnarsdóttur, skipulagsfulltrúa, dags. 3. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.


3.Deiliskipulag Eyrarkláfur nýtt - 2025100175

Lagðar fram til kynningar, umsagnir og ábendingar sem bárust við vinnslutillögu á nýju deiliskipulagi Eyrarkláfs.

Vinnslutillagan var kynnt frá 13. janúar til og með 10. febrúar 2026.
Jafnframt er lagt fram minnisblað Erlu Margréti Gunnarsdóttur, skipulagsfulltrúa, dags. 3. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.
Skipulags- og mannvirkjanefnd bendir á að á þessu stigi máls verða umsagnir og ábendingar sendar á skipulagsráðgjafa Eyrarkláfs ehf. Nefndin mun taka erindið fyrir að nýju þegar uppfærð gögn berast sveitarfélaginu.

4.Deiliskipulag Gleiðarhjalli - breyting - Eyrarkláfur - 2025100174

Lagðar fram til kynningar, umsagnir og ábendingar sem bárust við vinnslutillögu breytinga á deiliskipulagi Gleiðarhjalla.

Vinnslutillagan var kynnt frá 13. janúar til og með 10. febrúar 2026.
Jafnframt er lagt fram minnisblað Erlu Margréti Gunnarsdóttur, skipulagsfulltrúa, dags. 3. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.
Skipulags- og mannvirkjanefnd bendir á að á þessu stigi máls verða umsagnir og ábendingar sendar á skipulagsráðgjafa Eyrarkláfs ehf. Nefndin mun taka erindið fyrir að nýju þegar uppfærð gögn berast sveitarfélaginu.

5.Hveravík Reykjanesi - Lóð í fóstur - 2026020084

Á 667. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar var lagður fram tölvupóstur frá Rúnari Þór Konráðs Brynjólfssonar fyrir hönd Hveravíkurfjölskyldunnar, dags. 1. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir að taka í fóstur landsvæði inni í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. Skipulags- og mannvirkjanefnd tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsfulltrúa að vinna drög að afnotasamningi og leggja fram að nýju.
Nú er lagt fram til samþykktar, samkomulag um fósturlóð, dags. 3. mars 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd felur skipulagsfulltrúa að ganga frá afnotasamningi um lóð í fóstur á Reykjanesi, frá Pumphúsvík að vestanverðum Vestaritanga.

Nefndin leggur áherslu á að afnotasamningar sem þessi veita engin eignarréttindi og eru alltaf víkjandi í skipulagsvinnu og við sölu eigna.

6.Tjaldsvæði í Tungudal. Lóðarmál - 2026010263

Lagt fram hnitsett mæliblað tæknideildar, dags. 9. apríl 2025 vegna reksturs tjaldsvæðis við Skógarbraut, Tungudal í Skutulsfirði, unnið eftir skilgreindum á lóðarmörkum í gildandi deiliskipulagi frá Tungudals frá árinu 2006.
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir mæliblað og felur sviðsstjóra að ganga frá lóðarleigusamningi tjaldsvæðis í Tungudal, Skógarbraut 101, í samræmi við mæliblað tæknideildar, dags. 9. apríl 2025.

7.Fjarðarstræti 33, Ísafirði. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2026020046

Lögð fram umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi vegna stækkunar lóðar, frá eiganda fasteignar að Fjarðarstræti 33 á Ísafirði, dags. 5. febrúar 2026. Jafnframt er lagt fram minnisblað verkefnastjóra í merkjalýsingum eigna Ísafjarðarbæjar, dags. 3. mars 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir stækkun lóðar í samræmið við gildandi deiliskipulag Eyrarinnar og felur sviðsstjóra að ganga frá samningi við Fjarðarstræti 33, miðað við þinglýst lóðarmörk aðliggjandi eigna.

8.Hrafnatangi 4, Ísafirði. Umsókn um lóð - 2025030093

Lögð er fram umsókn Hallvarðar Aspelund f.h Nora Seafood ehf. um að skipta gatnagerðargjöldum í þrjá hluta með vísan í 9 gr. samþykktar Ísafjarðarbæjar Nr. 1171/2025 um um gatnagerðargjald, stofngjald vatnsveitu og stofngjald holræsa í Ísafjarðarbæ.
Samhliða umsókn er lögð fram áfangaskipting framkvæmdar með hliðsjón af greiðslum gjaldanna ásamt minnisblaði Byggingarfulltrúa. Óskað er eftir afstöðu nefndarinnar vegna málsins.
Skipulags- og mannvirkjanefnd vísar erindi til bæjarráðs til afgreiðslu.

9.Ósk um lóð fyrir sjálfsafgreiðslustöð - 2026020083

Á 667. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar var lögð fram ósk um lóð undir sjálfsafgreiðslustöð Atlantsolíu ehf. dags. 8. febrúar 2026 og nefndin bókaði: "Þar sem að umrætt svæði er við náttúruverndarsvæði, óskar skipulags- og mannvirkjanefnd eftir umsögn frá Náttúrustofu Vestfjarða og Náttúruverndarstofnun".

Nú er lögð fram umsögn frá Náttúrstofu Vestfjarða dags. 20. febrúar 2026 og umsögn Náttúruverndarstofnunar, dags. 27. febrúar 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd bendir umsækjanda á að svæðið er ekki á lóðalista. Einnig er svæðið innan 30 m veghelgunarsvæðis Vegagerðarinnar ásamt helgunarsvæðis 33 kV háspennustrengs Orkubús Vestfjarða, frá Skeiði inn á Langeyri í Súðavík sem verður 1-2 m í samræmi við ákvæði í aðalskipulagi sveitarfélaganna.

Skipulags- og mannvirkjanefnd felur skipulagsfulltrúa að finna hentuga staðsetningar í samráði við umsækjanda.

10.Umsagnarbeiðni - Aðalskipulag Árneshrepps 2026-2038, mál nr. 01652026 - 2026020099

Á 1360. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 19. febrúar 2026, var lögð fram umsagnarbeiðni frá skipulagsgátt dags. 11. febrúar 2026 þar sem Árneshreppur óskar eftir umsögn í máli nr. 0164/2026 Aðalskipulag Árneshrepps 2026-2038.
Kynningartími er frá 11. febrúar til og með 11. mars 2026. Bæjarráð vísaði málinu til afgreiðslu í skipulags- og mannvirkjanefnd.
Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemd við skipulagslýsingu heildarendurskoðun aðalskipulags Árneshrepps.

11.Áætlun eignamarka jarða í landeignaskrá - 2025060184

Lögð fram til kynningar, lok verkefnis á áætluðum eignarmörkum jarða í Dýrafirði sem eru í eigu Ísafjarðarbæjar, unnin af Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar dags. 12. febrúar 2025. Jafnframt er lagt fram minnisblað tæknideildar, dags. 16. febrúar 2026 þar sem eru óljós eignarmörk og eignarhald.
Lagt fram til kynningar.

12.Áætlun eignamarka jarða í landeignaskrá - 2025060184

Lögð fram til kynningar, lok verkefnis á áætluðum eignarmörkum jarðarinnar Eyrar L205386 í Önundarfirði, sem er í eigu Ísafjarðarbæjar, unnin af Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar dags. 12. febrúar 2025. Jafnframt er lagt fram minnisblað tæknideildar, dags. 16. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

13.Áætlun eignamarka jarða í landeignaskrá - 2025060184

Lögð fram til kynningar, lok verkefnis á áætluðum eignarmörkum jarðanna Suðureyrar L205495 annars vegar og Selárdals L141253 hins vegar, unnin af Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar dags. 12. febrúar 2025. Jafnframt er lagt fram minnisblað tæknideildar, dags. 16. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

14.Áætlun eignamarka jarða í landeignaskrá - 2025060184

Lögð fram til kynningar, lok verkefnis á áætluðum eignarmörkum jarðarinnar Álftamýri L140621 í Arnarfirði, sem er í eigu Ísafjarðarbæjar, unnin af Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar dags. 12. febrúar 2025. Jafnframt er lagt fram minnisblað tæknideildar, dags. 16. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

15.Áætlun eignamarka jarða í landeignaskrá - 2025060184

Lögð fram til kynningar, lok verkefnis á áætluðum eignarmörkum jarðanna Seljalands L141426 og Reykjaness L141585, nú í Súðavíkurhreppi sem eru í eigu Ísafjarðarbæjar, unnin af Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar dags. 12. febrúar 2025. Jafnframt er lagt fram minnisblað tæknideildar, dags. 16. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

16.Svæðisskipulag vestfirskra sveitarfélaga - 2022110080

Lögð fram til kynningar umsagnarbeiðni úr Skipulagsgátt dags. 16. febrúar 2026 þar sem Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða kynnir tillögu að Svæðisskipulagi Vestfjarða 2025-2050, ásamt umhverfisskýrslu og fylgiriti. Aðildarsveitarfélögin eru öll sveitarfélögin á Vestfjörðum; Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð, Reykhólahreppur, Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppur, Ísafjarðarbær, Bolungarvíkurkaupstaður og Súðavíkurhreppur.

Tillaga að Svæðisskipulagi Vestfjarða ásamt forsendum og umhverfismati hennar, er kynnt hér í Skiplagsgáttinni. Kynningartíminn stendur yfir frá 16. febrúar 2026 til 7. apríl 2026. Óskað er eftir því að athugasemdum verði komið á framfæri á Skipulagsgáttinni fyrir lok dags 7. apríl 2026.

Um er að ræða fyrsta svæðisskipulagið sem tekur til Vestfjarða í heild og markar sameiginlega stefnu sveitarfélaga til ársins 2050. Í svæðisskipulagstillögunni eru sett fram leiðarljós og markmið undir fimm málefnasviðum; náttúru og auðlindir, grunnkerfi, samfélagsauð, atvinnu og nýsköpun og menningarauð. Hver málaflokkur hefur sín markmið og aðgerðir ásamt skýringum við stefnuna.

Auglýsing tillögunnar og umhverfismatsskýrslu er á grundvelli 24. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Lagt fram til kynningar.

17.Svæðisskipulag vestfirskra sveitarfélaga - 2022110080

Á 1360. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 19. febrúar 2026, var lögð fram til kynningar fundargerðir 24. fundar svæðisskipulagsnefndar, en fundur var haldinn þann 11. febrúar 2026. Bæjarráð vísaði fundargerðinni til kynningar í skipulags- og mannvirkjanefnd.
Lagt fram til kynningar.

18.Ársskýrsla 2025 - Slökkvilið Ísafjarðarbæjar - 2026020045

Á 1359. fundi bæjarráðs, þann 12. febrúar 2026, var lögð fram til kynningar Ársskýrsla slökkviliðs Ísafjarðarbæjar 2025.

Bæjarráð vísaði ársskýrslu slökkviliðs Ísafjarðarbæjar 2025 til kynningar í skipulags- og mannvirkjanefnd.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:54.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?