Skipulags- og mannvirkjanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
419. fundur 24. september 2014 kl. 08:00 - 10:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Sigurður Jón Hreinsson formaður
  • Magni Hreinn Jónsson aðalmaður
  • Sigurður Mar Óskarsson aðalmaður
  • Gunnar Jónsson varamaður
  • Jóhann Birkir Helgason sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs
  • Ralf Trylla umhverfisfulltrúi
  • Þorbjörn Jóhann Sveinsson Starfsmaður Ísafjarðarbæjar
  • Jón Sigmundsson áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Jóhann Birkir Helgason sviðstjóri umhverfis- og eignasviðs
Dagskrá
Ásgerður Þorleifsdóttir mætti ekki og engin í hennar stað.

1.Ný reglugerð um starfsemi slökkviliða - 2014090020

Tekið fyrir bréf frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu dags. 1. september 2014 þar sem óskað er eftir umsögn á tillögu að nýrri reglugerð um starfsemi slökkviliða.
Slökkviliðsstjóri fór yfir reglugerðina og hvaða áhrif reglugerðin mun hafa á sveitarfélagið.
Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemd við reglugerðina.
Þorbjörn Sveinsson, slökkviðliðsstjóri vék af fundi.

2.Leyfi til leitar og borunar eftir vatni fremst í Botnsdal - 2014030045

Lagt fram bréf dags 3. september 2014 ásamt yfirlitsmynd af fyrirhuguðum borholum í Botnsdal.
Skipulags- og mannvirkjanefnd bendir á að efri holurnar tvær eru innan vatnsverndarsvæðis Ísafjarðarbæjar og því getur nefndin ekki fallist á borun á því svæði. Neðri holan er innan náttúruminjasvæðis. Nefndin felur sviðsstjóra að ræða við bréfritara um framhaldið.

3.Framkvæmdaleyfi fyrir jarðstreng í Engidal - 2014090023

Lagður fram tölvupóstar frá Halldóri Magnússyni fh. Orkubús Vestfjarða ohf. dags. 4. og 11 september 2014 þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir 11 kV jarðstreng og fjarskiptarör frá enda Engidalslínu ofan Kapellu að Fossárvirkjun í Engidal, Ísafirði.
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir framkvæmdina enda er um að ræða óverulega framkvæmd sem ekki hefur áhrif á umhverfið sbr. reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772.

4.Látrar í Aðalvík - ósk um niðurrif - 2014090019

Lagt fram bréf dags. 26. ágúst 2014 frá Valdimar K Jónssyni, Borghildi Jónsdóttur og Helga Þorvaldssyni fh. Miðvíkur fasteignafélags ehf. þar sem þess er farið á leit að Ísafjarðarbær láti fjarlægja hús nr. 03 0101 á Látrum (fastanúmer 226-4555) í Aðalvík, Sléttuhreppi í Ísafjarðarsýslu.
Skipulags- og mannvirkjanefnd óskar eftir minnisblaði frá bæjarlögmanni vegna málsins, jafnframt er óskað umsagnar Umhverfisstofnunar á erindinu í samræmi við "Samkomulag varðandi byggingarleyfi í friðlandinu á Hornströndum".

5.Aðalgata, Suðureyri, akstursstefna - 2014090031

Tekinn fyrir tölvupóstur dags. 9. september 2014 frá Kristínu Hálfdánsdóttur fh. Landflutninga Samskips þar sem farið er þess á leit að Ísafjarðarbær greiði reikninga frá lögreglunni vegna lögreglufylgdar um Aðalgötu á Suðureyri. Jafnframt lagt fram minnisblað frá Jóhanni Birki Helgasyni sviðsstjóra varðandi málið.
Skipulags- og mannvirkjanefnd hafnar að greiða reikninga þar sem bæjarfélagið óskaði ekki eftir þjónustunni. Nefndinni er ljós sá vandi sem stafar af einstefnu um Aðalgötu. Deiliskipulag af svæðinu gerir ráð fyrir að Eyrargatan verði framlengd til norð-vesturs. Með þeirri breytingu geta stærri bílar ekið út fyrir bæinn. Einnig má skoða breytingu á Aðalgötu í tvístefnu.

6.Fjárhagsáætlun 2015 - 2014080027

Tekið fyrir að nýju fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2015.
Nefndin frestar erindinu til næsta fundar.

7.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2008-2020 - breyting. - 2013060014

Á fundi bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar 18. september 2014 var afgreiðslu á skipulags- og matslýsingu vegna breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 frestað.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulags- og matslýsingin verði auglýst.

8.Endurskoðuðun erindisbréfa - 2012110034

Tekið fyrir að nýju erindisbréf skipulags- og mannvirkjanefndar.
Skipulags- og mannvirkjanefnd vísar erindisbréfinu með breytingum sem gerðar voru á fundinum til bæjarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 10:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?