Sameinuð almannavarnanefnd Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Sólmyrkvi 2026 - 2025100057
Hlynur Hafberg Snorrason, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á Vestfjörðum kynnir verkefni lögreglu þann 12. ágúst 2026, þegar sólmyrkvi verður.
Sigurður A. Jónsson, slökkviliðsstjóri Ísafjarðarbæjar fer yfir verkefni slökkviliðs og sjúkraflutninga, en von er á fjölda fólks, húsbíla og rúta inn á Vestfirði vegna þessa atburðar.
Sigurður A. Jónsson, slökkviliðsstjóri Ísafjarðarbæjar fer yfir verkefni slökkviliðs og sjúkraflutninga, en von er á fjölda fólks, húsbíla og rúta inn á Vestfirði vegna þessa atburðar.
Sigurður A. Jónsson, Hlynur H. Snorrasong og Helgi Jensson, lögreglustjóri, fara yfir nýjustu upplýsingar varðandi skipulagningu Sólmyrkvahátíðar 12. ágúst 2026, hjá viðbragðsaðilum. Rætt um vegalokanir, takmarkanir á bílaumferð, áætlaðan fjölda ferðamanna, verkefni Markaðsstofa landshlutasamtakanna, skilaboð til íbúa um að vera heima og horfa þaðan, skipulag viðbragðsaðila og upplýsingagjöf til íbúa og ferðamanna.
Helgi Jensson þurfti frá að hverfa kl. 13.27.
2.Flugslysaæfing Ísafjörður vor 2026 - 2026040236
Kynnt framkvæmd aðgerðastjórnar vegna flugslysaæfingar sem haldin verður 30. maí 2026 á Ísafirði. Undirbúningur og upprifjun fyrir viðbragðsaðila verður dagana fyrir æfingu.
Sigurður Arnar Jónsson fer yfir skipulag æfingarinnar og undirbúning dagana fyrir.
3.Hús á snjóflóðahættusvæði - 2026050031
Mál sett á dagskrá að beiðni formanns nefndarinnar.
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og yfirlögregluþjónn kynna upplýsingar sem fram komu á fundi með Snjóflóðaseti Veðurstofu Íslands, varðandi fasteignir á snjóflóðahættusvæði, sem nýtt eru allan ársins hring, t.d. sumarhús og sjóstangaveiðihús í mörgum byggðarlögum sveitarfélaganna, bæði eignir þar sem kvaðir eru um dvöl og ekki kvaðir.
Fundi slitið - kl. 13:50.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?