Öldungaráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
3. fundur 12. október 2016 kl. 15:00 - 16:30 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Björn Helgason formaður
  • Guðný Sigríður Þórðardóttir aðalmaður
  • Halla Sigurðardóttir aðalmaður
  • Guðmundur Hagalínsson aðalmaður
  • Auður Helga Ólafsdóttir aðalmaður
  • Magnús Reynir Guðmundsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði: Margrét Geirsdóttir Sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá
Gunnlaugur Gunnlaugsson boðaði forföll, í hans stað sat Linda Rós Kristjónsdóttir fundinn. Grétar Þórðarson mætti ekki og enginn í hans stað.
Garðar Sigurgeirsson og Sveinn Ingi Guðbjörnsson sátu fundinn undir 1. dagkrárlið, sem Axel Rodriguez Överby, skipulags- og byggingarfulltrúi Ísafjarðarbæjar. Guðný Stefanía Stefánsdóttir og Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir sátu fundinn undir 2. dagskrárlið. Magnús Reynir Guðmundsson fór af fundi eftir umræður um 1. dagskrárlið.

1.Húsnæðismál eldri borgara. - 2016090034

Öldungaráð samþykkti á fundi sínum þann 14. September s.l. að kalla til viðræðna fulltrúa frá umhverfis- og eignasviði Ísafjarðarbæjar og fulltrúa byggingaverktaka.
Mættir til fundar voru: Axel Rodriques Överby, Garðar Sigurgeirsson og Sveinn Ingi Guðbjörnsson.
Axel Rodriques Överby, skipulags- og byggingarfulltrúi Ísafjarðarbæjar kynnti vinnu sem hefur farið fram á umhverfis- og eignasviði og varðar byggingu á húsnæði fyrir eldri borgara. Garðar Sigurgeirsson og Sveinn Ingi Guðbjörnsson frá Vestfirskum verktökum mættu til fundar við ráðið og svöruðu fyrirspurnum frá fulltrúum í ráðinu. Þeir lýstu sig tilbúna til samvinnu um úrræði sem gagnast gætu eldri borgurum í húsnæðismálum.

2.Heilsuefling. - 2016090035

Á fundi sínum þann 14. september s.l. var ákveðið að óska eftir viðræðum við formann og framkvæmdastjóra HSV. Þær Guðný Stefanía Stefánsdóttir og Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir mættu til fundar við ráðið.
Sigríður og Guðný ræddu við nefndina um hlutverk HSV gagnvart Kubba, íþróttafélagi aldraðra. M.a var rætt um hvort HSV gæti haft aðkomu að aukinni þjónustu við eldri borgara t.d. með því að útvega starfsmann til þess að stýra skipulagi íþrótta- og tómstundamála hjá þeim. Jafnframt rætt um púttvöllinn á Torfnesi og umhirðu hans.

Fundi slitið - kl. 16:30.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?