Notendaráð fatlaðs fólks á Vestfjörðum
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Húsnæðismál fatlaðra á Vestfjörðum - 2025110205
Sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs Ísafjarðarbæjar mætti til viðræðna um húsnæðismál fatlaðra. Hann kynnti mögulegar staðsetningar nýbygginga á Ísafirði.
Notendaráð þakkar kynninguna og hvetur til þess að þarfagreiningu í húsnæðismálum fatlaðra á Vestfjörðum verði hraðað eins og kostur er. Þá verði leitað til Þroskahjálpar og Brynju hússjóðs um byggingu húsnæðis sem hentar fötluðum.
2.Aðgengismál á Vestfjörðum - 2025110205
Sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs Ísafjarðarbæjar mætti til viðræðna um stöðu aðgengismála í Ísafjarðarbæ. Einnig rætt almennt um aðgengismál á Vestfjörðum.
Notendaráð þakkar kynningu frá sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs. Notendaráð hyggst senda bréf á sveitarfélög og þjónustuaðila með fyrirspurn um aðgengismál.
Sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs vék af fundi eftir umfjöllun um lið 2.
3.Forvarnarstefna Ísafjarðarbæjar 2025 - 2025030036
Lögð fram til kynningar drög að forvarnarstefnu Ísafjarðarbæjar.
Lagt fram til kynningar.
4.Samtal notendaráðs við Rúnar Björn Herrera Þorkelsson frá ÖBÍ um hlutverk ráðsins - 2025110205
Rúnar Björn Herrera Þorkelsson frá ÖBÍ mætti til fundar við ráðið til umræðna um notendaráð og hlutverk þess.
Rúnar Björn leggur áherslu á að sveitarstjórnir geri sér grein fyrir ríku hlutverki fulltrúa sinna í notendaráði. Tenging við fatlaða íbúa sveitarfélagsins skiptir máli og virðing fyrir hlutverki notendaráðs sem baráttuaðila fyrir sjálfsögðum lögbundnum réttindum fatlaðra. Notendaráð hyggst boða nýja bæjar- og sveitarstjóra til fundar við ráðið til þess að kynna þeim hlutverkið og mikilvægi þess. Notendaráðið hyggst funda í Vesturbyggð í september næstkomandi og mun þá óska eftir fundi með bæjarstjórn Vesturbyggðar.
Fundi slitið - kl. 12:15.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?
Þorgeir Pálsson, varafulltrúi Stranda og Reykhólahrepps mætti ekki til fundar.