Nefnd um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
12. fundur 27. febrúar 2026 kl. 13:00 - 13:30 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Sigurður Arnar Jónsson aðalmaður
  • Sveinn Hermann Þorbjörnsson aðalmaður
  • Sigríður Júlía Brynleifsdóttir aðalmaður
  • Axel Rodriguez Överby aðalmaður
Starfsmenn
  • Eyþór Guðmundsson starfsmaður
Fundargerð ritaði: Axel Rodriguez Overby Sviðsstjóri Umhverfis- og eignasviðs
Dagskrá

1.Ný slökkvistöð - Hönnun og útboð - 2024120087

Lögð eru fram drög að útboðsgögnum vegna útboðs á fyrsta áfanga framkvæmda við nýja slökkvistöð á Suðurtanga, sem tekur til burðarvirkis mannvirkisins. Jafnframt fylgja málinu útboðslýsing, verklýsing og uppdrættir auk kostnaðaráætlunar frá Glóru ehf. dagsett 20. apríl 2026.
Lagt er til að nefndin vísi málinu til bæjarráðs til samþykktar, með það að markmiði að fá heimild til að fara í útboð og hefja innkaupaferli verksins á grundvelli fyrirliggjandi útboðsgagna.
Nefnd um byggingu slökkvistöðvar leggur til við bæjarráð að heimila sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs að hefja útboðsfasa með tilliti til fyrirliggjandi gagna.

Fundi slitið - kl. 13:30.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?