Nefnd um byggingu slökkvistöðvar í Skutulsfirði
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Ný slökkvistöð - Hönnun og útboð - 2024120087
Lagðir eru fram aðaluppdrættir frá Glóru ehf., dags. 15. des sl. þær breytingar sem hafa átt sér stað frá síðustu kynningu dagsetti 15 desember eru þær að mannvirki var fært 6 metra nær Húsasmiðju, ásamt yfirferð brunahönnuðar.Boðaðir eru til fundar Guðmundur Þórðarson og Þorleifur Björnsson hjá Glóru ásamt burðarþolshönnuði.
Nefndin þakkar góða kynningu og leggur til að kláraðir verði aðaluppdrættir, burðarþolshönnun ásamt viðeigandi gögnum.
2.Suðurtangi 1- Lóð slökkvistöðvar - 2025030202
Lögð fram verkfundargerð nr. 7 dags. 22. jan., sl vegna jarðvegsskipta lóðar. Um 5000 rúmmetrar af efni var grafið upp og sett niður um 5000 rúmmetrar af kjarna. Uppmokað rusl hefur verið flutt inn í Engidal til frekari úrvinnslu.
Lögð fram til kynningar
3.Suðurtangi 1- Lóð slökkvistöðvar - 2025030202
Lagðar fram niðurstöður plötuprófs vegna lóðar við Suðurtanga 1, dags. 1. febrúar 2026. Prófanir voru framkvæmdar af verkfræðistofu FHG., og voru gerðar prófanir á sjö mælipunktum.
158?170 MPa og uppfyllir þar með settar kröfur um burðargetu. Mælingarnar benda til jafnnrar og góðrar þjöppunar malarfyllingar og teljast niðurstöður almennt mjög góðar.
158?170 MPa og uppfyllir þar með settar kröfur um burðargetu. Mælingarnar benda til jafnnrar og góðrar þjöppunar malarfyllingar og teljast niðurstöður almennt mjög góðar.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 09:15.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?