Menningarmálanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
5.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - Sviðslistastefna 2026-2030
Dagskrá
1.Fræðsla fyrir kjörna fulltrúa 2026 - 2026060025
Fræðsla fyrir kjörna fulltrúa frá bæjarritara.
Fræðsla frá bæjarritara.
2.Aðgerðaáætlun menningarstefnu Ísafjarðarbæjar - 2022100090
Lagt fram til kynningar minnisblað Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 30. apríl 2026, varðandi stöðu á aðgerðaáætlun með menningarstefnu Ísafjarðarbæjar.
Nefndin felur starfsmanni að setja málið aftur á dagskrá á næsta fundi nefndarinnar, þar sem aðgerðir fyrir komandi rekstrarár verði ræddar, og í kjölfarið verði hafin vinna að nýrri aðgerðaáætlun fyrir kjörtímabilið. Nefndin felur starfsmanni að vinna áfram útistandandi verkefni á næstu mánuðum.
Nefndin fagnar þeirri vinnu sem þegar hefur verið unnið til að framfylgja Menningarstefnu Ísafjarðarbæjar.
Nefndin fagnar þeirri vinnu sem þegar hefur verið unnið til að framfylgja Menningarstefnu Ísafjarðarbæjar.
3.Styrkir til menningarmála 2026 - 2026020216
Lögð fram til kynningar greinargerð vegna menningarstyrks 2026 vegna leikskólaheimsókna Maraþonmanna.
Nefndin þakkar greinargerðina, sem er lögð fram til kynningar.
4.Ársskýrsla Héraðsskjalasafns, ljósmyndasafns og listasafns 2025 - 2026040283
Lagðar fram til kynningar ársskýrslur Skjalasafns og Ljósmyndasafns Ísafjarðar og Listasafns Ísafjarðar fyrir árið 2025.
Nefndin þakkar áhugaverðar og greinargóðar ársskýrslur, sem eru lagðar fram til kynningar.
Nefndin er samhljóða um að söfnin hafi unnið gott starf og hvetur þau til áframhaldandi góðra verka.
Nefndin er samhljóða um að söfnin hafi unnið gott starf og hvetur þau til áframhaldandi góðra verka.
5.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - Sviðslistastefna 2026-2030
- 2026010014
Lagt fram erindi menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, dags. 19. maí 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 88/2026, "Sviðslistastefna 2026-2030". Umsagnarfrestur er til og með 1. júlí 2026.
Nefndir felur starfsmanni að móta umsögn og skila í samræmi við umræður á fundinum.
6.Fundargerðir Byggðasafns Vestfjarða 2022-2026 - 2026040202
Lagðar fram til kynningar fundargerðir Byggðasafns Vestfjarða árið 2025 og 2026, auk fylgigagna með fundargerðum, en um er að ræða fundargerð aðalfundar 22. september 2025, fundargerð 130. stjórnarfundar haldinn 25. nóvember 2025 og 131. stjórnarfundar haldinn 25. mars 2026.
Auk þess er lögð fram ársskýrsla 2025, grisjunarstefna 2026-2028 og safnastefna 2023-2028.
Málið var tekið fyrir á 1369. fundi bæjarráðs, þann 7. maí 2026, og vísað til kynningar í menningarmálanefnd.
Auk þess er lögð fram ársskýrsla 2025, grisjunarstefna 2026-2028 og safnastefna 2023-2028.
Málið var tekið fyrir á 1369. fundi bæjarráðs, þann 7. maí 2026, og vísað til kynningar í menningarmálanefnd.
Nefndin þakkar fyrir framlagða ársskýrslu 2025.
Fundi slitið - kl. 14:30.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?