Menningarmálanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
180. fundur 08. maí 2026 kl. 12:10 - 13:05 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Inga María Guðmundsdóttir varaformaður
  • Pétur Óli Þorvaldsson aðalmaður
  • Elísabet Samúelsdóttir formaður
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
Dagskrá

1.30 ára afmæli Ísafjarðarbæjar - 2026040281

Rannveig Jónsdóttir, menningarfulltrúi, kynnir drög að hátíðardagskrá á 30 ára afmælisdegi Ísafjarðarbæjar 1. júní 2026.
Menningarmál þakkar metnaðarfulla dagskrá og hvetur bæjarbúa að sækja afmælisviðburði 29. maí til 1. júní 2026.

Gestir

  • Rannveig Jónsdóttir, menningarfulltrúi - mæting: 12:10

2.17. júní hátíðahöld - 2019060003

Umræður um hátíðarhöld 17. júní 2026 og ákvörðun um fjallkonu og ræðumann hátíðarhaldanna
Rannveig Jónsdóttir, menningarfulltrúi, kynnir drög að hátíðardagskrá á 17. júní í Ísafjarðarbæ, og þær viðbætur sem verða á dagskránni að þessu sinni.
Rannveig yfirgaf fund kl. 12.50.

3.Skíðavikan og páskar - 2021030113

Lagt fram til kynningar minnisblað Helgu Þórdísar Björnsdóttir, skíðavikustjóra, dags. 6. maí 2026, vegna framkvæmdar Skíðavikunnar 2026.
Menningarmálanefnd fagnar góðri skíðaviku og þakkar góða vinnu.

4.Aðgerðaáætlun menningarstefnu Ísafjarðarbæjar - 2022100090

Lagt fram til kynningar minnisblað Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 30. apríl 2026, varðandi stöðu á aðgerðaáætlun með menningarstefnu Ísafjarðarbæjar.
Menningarmálanefnd lýsir yfir gleði með stöðu verkefna, en felst verkefni ársins eru þegar hafin eða þeim lokið.

5.Lóðahönnun safnasvæðis í Neðstakaupstað - 2025060025

Lögð fram til kynningar hönnunargögn vegna lóðar safnasvæðis í Neðstakaupstað, en 22. apríl 2026 auglýsti Ísafjarðarbær eftir tilboðum í endurnýjun og uppbyggingu útisvæðis.

Verkið felur m.a. í sér jarðvinnu, uppbyggingu aðkomu- og dvalarsvæða, smíði skjólveggja, timburstíga og timburpalla, yfirborðsfrágang, gróðurfrágang, sem og lagningu raf- og lagnakerfa í samræmi við útboðsgögn og verklýsingu.

Opnun tilboða verður 6. maí 2026 og verklok fyrirhuguð 1. september 2026.
Menningarmálanefnd fagnar framkominni lóðahönnun og hlakkar til að sjá framvindu verksins.

6.Ársskýrsla Bókasafns Ísafjarðar 2025 - 2026040280

Lögð fram til kynningar ársskýrsla Bókasafnsins á Ísafirði 2025
Menningarmálanefnd þakkar góða ársskýrslu og lýsir ánægju með gott og fjölbreytt starf á safninu.

7.Félagsheimilið á Þingeyri - rekstrarsamningur o.fl. - 2018040016

Lagður fram til kynningar ársreikningur Félagsheimilisins á Þingeyri 2025, ásamt minnisblað Ólafar Dómhildar Jóhannsdóttur, upplýsingafulltrúa, dags. 29. apríl 2026, um endurbætur á félagsheimilinu.
Menningarmálanefnd þakkar ársreikning Félagsheimilisins og fagnar endurbótum á félagsheimilinu. Sérstakar þakkir færðar til Eiríks Eiríkssonar, stórum styrktaraðila verkefnisins.

Fundi slitið - kl. 13:05.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?