Íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
138. fundur 13. febrúar 2013 kl. 16:00 - 16:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Guðný Stefanía Stefánsdóttir varaformaður
  • Dagur Hákon Rafnsson aðalmaður
  • Gauti Geirsson aðalmaður
  • Kristján Óskar Ásvaldsson formaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Margrét Halldórsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
Fundargerð ritaði: Patrekur Súni Íþróttafultrúi
Dagskrá
Fundinn sátu einnig: Pétur Markan, framkvæmdastjóri HSV, Jón Páll Hreinsson, formaður HSV og Patrekur Súni Reehaug, íþróttafulltrúi.

1.Ýmis erindi 2012/2013 - Ungmennafélag Íslands - 2012010006

Lagt fram bréf frá UMFÍ dagsett 7. febrúar 2013 þar sem fram kemur að auglýst hefur verið eftir umsóknum frá sambandsaðilum um að taka að sér undirbúning og framkvæmd 28. Landsmóts UMFÍ 2017 og 29. Landsmóts UMFÍ 2021.
Lagt fram til kynningar.

2.Ýmis erindi 2012/2013 - Ungmennafélag Íslands - 2012010006

Lagt fram bréf frá UMFÍ dagsett 7. febrúar 2013 þar sem fram kemur að ákveðið hefur verið að auglýsa eftir umsóknum frá sambandsaðilum um að taka að sér undirbúning og framkvæmd 19. Unglingalandsmóts UMFÍ 2016.
Lagt fram til kynningar.

3.Ýmis erindi 2012/2013 - Ungmennafélag Íslands - 2012010006

Lagt fram bréf frá UMFÍ dagsett 7. febrúar 2013 þar sem fram kemur að ákveðið hefur verið að auglýsa eftir umsóknum frá sambandsaðilum um að taka að sér undirbúning og framkvæmd 28. Landsmóts UMFÍ 2017 og 5. Landsmóts UMFÍ 50+ árið 2015.
Nefndin hvetur HSV til að sækja um Landsmót UMFÍ 50+ árið 2015.

4.Ýmis erindi 2012/2013 - Ungmennafélag Íslands - 2012010006

Lagt fram bréf frá UMFÍ dagsett 24. febrúar 2013 þar sem fram kemur samþykkt frá 38. samráðsfundi Ungmennafélags Íslands.
Lagt fram til kynningar.

5.Jafnréttisáætlun - 2010050008

Lögð fram samþykkt jafnréttisáætlun Ísafjarðarbæjar.
Lagt fram til kynningar.

6.Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2012 - 2012110041

Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs þar sem viðraðar eru hugmyndir um breytt fyrirkomulag á útnefningu íþróttamanns Ísafjarðarbæjar.
Nefndin felur starfsmönnum að setja upp minnisblað í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir formannafund HSV til umsagnar.

7.Stefnumótun í íþrótta- og tómstundamálum Ísafjarðarbæjar - 2011030095

Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs þar sem fram kemur að mikilvægt sé að hefja forgangsröðun á uppbyggingaráætlun íþróttamannvirkja í samráði við HSV.
Nefndin óskar eftir því við HSV að gerð verði þarfagreining fyrir þær íþróttir sem stundaðar eru hjá sveitarfélaginu.
a) Jón Páll kynnti Pétur Markan, nýjan framkvæmdastjóra HSV, fyrir nefndinni.
b) Guðný Stefanía lýsti yfir ánægju sinni með kynningu HSV á ánægjuvoginni í síðustu viku.

Fundi slitið - kl. 16:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?