Íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
174. fundur 17. janúar 2017 kl. 08:05 - 09:40 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Kristján Andri Guðjónsson formaður
  • Jón Ottó Gunnarsson varaformaður
  • Sif Huld Albertsdóttir aðalmaður
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
  • Guðjón Már Þorsteinsson varamaður
Starfsmenn
  • Margrét Halldórsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
Fundargerð ritaði: Margrét Halldórsdóttir Sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
Dagskrá
Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir boðaði forföll og mætti Guðjón Þorsteinsson í hennar stað. Ásgerður Þorleifsdóttir boðaði forföll en enginn mætti í hennar stað.
Einnig sat fundinn Esther Ósk Arnórsdóttir, tómstundafulltrúi.

1.Verkefnalisti íþrótta- og tómstundanefndar - 2014030027

Lagður fram verkefnalisti nefndarinnar.
Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl:

2.Hestamannafélagið Hending - kröfugerð vegna reiðvallar - 2016050078

Lögð fram drög að samkomulagi við Hestamannafélagið Hendingu, einning lögð fram umsögn HSV um drögin.
Nefndin gerir ekki athugasemd við drögin. Sif Huld Albertsdóttir tók ekki afstöðu til samkomulagsins og gerir athugasemd við að fullnægjandi gögn hafi ekki borist fyrr en á fundinum.

3.Styrkbeiðni frá SFÍ - 2017010047

Lögð fram styrkbeiðni frá SFÍ vegna Unglingameistaramóts Íslands sem haldið verður á Ísafirði 23.-26. mars 2017.
Nefndin tekur jákvætt í erindið og vísar málinu til bæjarráðs þar sem ekki er fé í fjárhagsáætlun fyrir styrk sem þessum. Nefndin veltir fyrir sér hvort hluti þess sem óskað er eftir styrk fyrir eigi að vera í eigu skíðasvæðisins og felur starfsmanni að kanna það. Nefndin vill ítreka að beiðnir sem þessar komi tímalega og áður en vinnu við fjárhagsáætlun er lokið.

4.Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2016 - 2017010034

Lagðar fram tilnefningar til íþróttamanns og efnilegasta íþróttamanns Ísafjarðarbæjar árið 2016.
Nefndin valdi íþróttamann Ísafjarðarbæjar 2016 og efnilegasta íþróttamann ársins. Valið verður tilkynnt við athöfn sunnudaginn 22. janúar kl. 16:00 á 4. hæð Stjórnsýsluhússins á Ísafirði.

Fundi slitið - kl. 09:40.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?