Íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
150. fundur 15. október 2014 kl. 08:00 - 09:30 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Benedikt Bjarnason formaður
  • Sif Huld Albertsdóttir aðalmaður
  • Þórir Karlsson aðalmaður
  • Margrét Halldórsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
  • Guðrún Margrét Karlsdóttir áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Margrét Halldórsdóttir Sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
Dagskrá
Fundinn sat einnig framakvæmdarstjóri HSV Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir.
Jón Ottó Gunnarsson og Agnieszka Tyka boðuðu forföll en enginn mætti í þeirra stað.

1.Verkefnalisti íþrótta- og tómstundanefndar - 2014030027

Lagður fram verkefnalisti íþrótta- og tómstundanefndar.
Lagt fram til kynningar.

2.Endurskoðuðun erindisbréfa - 2012110034

Lagt fram erindisbréf nefndarinnar með þeim breytingum sem starfsmanni var falið að gera.
Nefndin gerir ekki athugasemdir við áorðnar breytingar og leggur til við bæjarstjórn að erindisbréfið verði samþykkt.

3.Knattspyrnuæfingasvæði á Skeiði - 2014090052

Lagt fram bréf frá Boltafélagi Ísafjarðar, dagsett 18. september 2014, þar sem óskað er eftir æfingarsvæði fyrir knattspyrnu. Búið er að taka málið fyrir í skipulags- og mannvirkjanefnd.
Lagt fram til kynningar

4.Strandblakvöllur í Skutulsfirði - 2014090053

Lagt fram bréf frá Blakfélaginu Skelli og HSV dags. 15. september sl. þar sem óskað er eftir að hafinn verði undirbúningur að gerð strandblakvallar í Skutulsfirði. Málið áður á dagskrá skipulags- og mannvirkjanefndar sem óskaði eftir umsögn íþrótta- og tómstundanefndar.
Nefndin tekur heilshugar undir bókun skipulags- og mannvirkjanefndar og fagnar því að framkvæmdir verði hafnar við gerð strandablakvallar.

5.Vinnuskólinn 2014 - 2014030075

Lögð fram skýrsla vinnuskólans 2014.
Nefndin þakkar fyrir greinagóða skýrslu, lagt fram til kynningar,.

Fundi slitið - kl. 09:30.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?