Hátíðarnefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
5. fundur 02. febrúar 2016 kl. 08:10 - 09:28 Í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.
Nefndarmenn
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir formaður
  • Jónas Þór Birgisson
  • Kristján Andri Guðjónsson
  • Inga Steinunn Ólafsdóttir
  • Hálfdán Bjarki Hálfdánsson upplýsingafulltrúi
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir Bæjarritari
Dagskrá

1.Sýningar og söfn í tengslum við kaupstaðarafmæli - 2015090060

Farið verður yfir sýningarmuni sem tengjast 150 ára kaupstaðarafmælinu.
Jón Sigurpálsson, forstöðumaður Byggðasafnsins, mætir til fundarins.
Jón Sigurpálsson gerði grein fyrir þeim sýningum sem gert er ráð fyrir að settar verði upp í tilefni af 150 ára kaupstaðarafmælinu, jafnframt voru ræddar hugmyndir að frekari sýningum.
Jón Sigurpálsson yfirgaf fundinn kl. 8:48.

Gestir

  • Jón Sigurpálsson - mæting: 08:10

2.Hátíðarnefnd í tengslum við 20 ára afmæli Ísafjarðarbæjar og 150 kaupstaðarafmæli Ísafjarðar - 2015090060

Farið er yfir þau verkefni sem liggja fyrir nefndinni vegna skipulagningar hátíðarhalda 150 ára kaupstaðarafmælisins í sumar.
Nefndin skipti með sér verkum vegna hátíðardagskrár 14.-17. júlí nk. og setti upp beinagrind að dagskrá.

3.Leiksýning - Litli leikklúbburinn 2016 - 2016010058

Lagt er fram bréf Jóhönnu Ásu Einarsdóttur, formanns Litla leikklúbbsins, dags. 17. janúar sl., varðandi leiksýningu félagsins í tilefni af 50 ára afmæli leikklúbbsins.
Á 915. fundi bæjarráðs tók bæjarráð jákvætt í erindið og vísaði því til Hátíðarnefndar.
Hátíðarnefnd þakkar erindið og telur ekkert nema sjálfsagt að Litli leikklúbburinn auglýsi leikritið Rauðhetta í tengslum við stórafmæli Ísafjarðarbæjar.

Fundi slitið - kl. 09:28.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?