Hafnarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
186. fundur 13. september 2016 kl. 12:00 - 13:20 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Kristján Andri Guðjónsson formaður
  • Daníel Jakobsson aðalmaður
  • Hafdís Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi
  • Valur Sæþór Valgeirsson varamaður
  • Hálfdán Bjarki Hálfdánsson upplýsingafulltrúi
  • Jóna Benediktsdóttir varaformaður
Starfsmenn
  • Guðmundur M Kristjánsson hafnarstjóri
Fundargerð ritaði: Hálfdán Bjarki Hálfdánsson upplýsingafulltrúi
Dagskrá

1.Hafnasamband Íslands - Ýmis erindi og fundargerðir 2013-2016 - 2013060031

Boðun á hafnarsambandsþing 2016 sem haldið verður á Ísafirði dagana 13. og 14. október.
Allar aðalmenn hafnarstjórnar verða fulltrúar á þinginu.

2.Staða hafna á Íslandi - 2016090028

Fyrir fundinum liggur skýrsla unnin fyrir innanríkisráðherra vegna stöðu hafna á Íslandi lögð fyrir Alþingi á 145. löggjafarþingi 2015-2016.
Lagt fram til kynningar.

3.Hafnasamband Íslands - Ýmis erindi og fundargerðir 2013-2016 - 2013060031

Fyrir fundinum liggja drög að stefnumörkun Hafnasambands Íslands dagsett 19/08/2016.
Lagt fram til kynningar.

4.Hafnasamband Íslands - Ýmis erindi og fundargerðir 2013-2016 - 2013060031

Fyrir fundinum liggur fundargerð 386. stjórnarfundar Hafnasambandsins.
Lagt fram til kynningar.

5.Sundabakki - framkvæmdir - 2016090029

Erindi frá hafnastjóra vegna hugmyndar um stækkun Sundahafnar á Ísafirði.
Mikilvægt er að hafnarstjórn sé höfð með í ráðum þegar kemur að framtíðaruppbyggingu og -skipulagi á hafnarsvæðum sveitarfélagsins. Að öðru leyti tekur stjórnin vel í hugmyndir um uppbyggingu á Sundahöfn og leggur til við bæjarstjórn að gert verði ráð fyrir fjármagni í frumhönnun verksins á fjárhagsáætlun 2017.

6.Tenderbryggja á Norðurtanga - 2016090030

Fyrir fundinum liggur minnisblað hafnastjóra vegna hugmyndar um að færa Tenderaðstöðu út í Norðurtanga á Ísafirði.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna áfram að uppbyggingu aðstöðu fyrir móttöku léttabáta stórra skemmtiferðaskipa í samstarfi við tæknideild Ísafjarðarbæjar.
Daníel Jakobsson og Hafdís Gunnarsdóttir fulltrúar D-lista og Marzellíus Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi B-lista leggja fram eftirfarandi sérálit: „Það er ánægjulegt að verið sé að huga að því að bæta aðstöðu fyrir s.k. léttabáta af skemmtiferðaskipum. Hinsvegar virðist svo vera, við fyrstu sýn a.m.k., að ekki sé heppilegt að gera það á Norðurtanga.
Í fyrsta lagi er ólíklegt að þetta svæði ráði við þá auknu umferð sem þetta kallar á.
Í öðru lagi þarf að vera mikið svæði fyrir rútur og aðra þjónustu sem ekki er pláss fyrir á þessum stað.
Í þriðja lagi er óhagstætt að byggja upp aðstöðu til móttöku skemmtiferðaskipa á tveimur stöðum á höfninni.
Heppilegra væri því að leita fyrst leiða til að bæta aðstöðu til móttöku léttabáta við Sundabakka eða í nágrenni hans og reyna að gera þá aðstöðu þannig úr garði að sómi sé að. Þannig mætti samhliða bæta aðstöðu fyrir þau skip sem leggjast upp að bakka.“

7.Stofnun Hollvinafélags Bæjarbryggjunnar á Ísafirði - 2016080011

Lagt fram bréf Friðgerðar Samúelsdóttur f.h. stjórnar Hollvinafélags Bæjarbryggjunnar á Ísafirði, dags. í júlí 2016. Bréfinu var vísað til hafnarstjórnar af bæjarráði.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 13:20.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?