Hafnarstjórn
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Móttökuhús Sundabakki - Útboð - 2026050128
Fjögur tilboð bárust í verkið Hrafnatangi móttökuhús innan tilboðsfrests.
Lögð er fram er opnunarskýrsla móttökuhúss, dagsett 29. júní 2026 og minnisblað Hilmars K. Lyngmo, hafnarstjóra dagsett 7. júlí 2026
Hafnarstjóri leggur til að samið verði við lægstbjóðanda.
Lögð er fram er opnunarskýrsla móttökuhúss, dagsett 29. júní 2026 og minnisblað Hilmars K. Lyngmo, hafnarstjóra dagsett 7. júlí 2026
Hafnarstjóri leggur til að samið verði við lægstbjóðanda.
Hafnarstjórn leggur til við bæjarráð, sem fer með valdheimildir bæjarstjórnar vegna sumarleyfa, að samið verði við lægstbjóðanda, All verk ehf.. Hafnarstjórn leggur til við bæjarráð að gert verði ráð fyrir framkvæmdinni á fjárhagsáætlunarvinnu haustsins fyrir árið 2027.
2.Kristjánsgata 21 - Umsókn um byggingarheimild - þjónustuhús við skútuhöfn á Ísafirði - 2025010225
Lagt fram til kynningar aðaluppdráttur af fyrirhuguðu þjónustuhúsi fyrir skútuhöfn.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að gera breytingar á fyrirliggjandi gögnum, sem snúa að útliti mannvirkis.
3.Dráttarbátur (40t togkraftur) - 2026070041
Lagt fram minnisblað Hilmars K. Lyngmo, hafnarstjóra dagsett 2. júlí 2026 þar sem hafnarstjóri leggur til að þegar í stað verði farið í að leita að hentugum dráttarbát.
Hafnarstjórn tekur vel í erindið og felur hafnarstjóra að vinna málið áfram.
4.Hafnasamband Íslands - ýmis erindi og fundargerðir 2023-2026 - 2023010276
Kynntar fundargerðir funda 482 og 483 hjá stjórn Hafnasambands Íslands. Fundirnir fóru fram þann 13. apríl og 29. maí 2026.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 12:45.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?