Hafnarstjórn
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Fræðsla fyrir kjörna fulltrúa 2026 - 2026060025
Bryndís Ósk Jónsdóttir mætir til fundar með fræðslu til handa nýkjörnum fulltrúum.
Lagt fram til kynningar.
2.Flateyrarhöfn 6, Flateyri. Umsókn um lóðarleigusamning - 2025070005
Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Andra Andrasyni dags. 15. júní 2026, þar sem farið er yfir stöðu máls.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna málið áfram.
3.Farþegagjöld og lögmæti gjaldheimtu þeirra - 2026030260
Lagt fram bréf frá Gunnari Val Sveinssyni dags. 10. júní 2026, fyrir hönd Samtaka ferðaþjónustunnar varðandi innheimtu farþegagjalda.
Ísafjarðarbær hefur skipað starfshóp til að fara yfir forsendur farþegagjalda. Hafnarstjórn leggur áherslu á að starfshópurinn skili niðurstöðum svo skjótt sem kostur er.
4.Skipulag á hafnarsvæðum vegna móttöku skemmtiferðaskipa - Sundabakki - 2024100012
Lögð fram hönnunaráætlun M11 Arkitekta dagsett 20. maí 2026 fyrir gerð tillögu að skipulagi og uppbyggingu farþegabátahafnar í Sundahöfn.
Hafnarstjóri óskar eftir heimild hafnarstjórnar til að semja við M 11 Arkitekta um hönnunarvinnu í Sundahöfn.
Hafnarstjóri óskar eftir heimild hafnarstjórnar til að semja við M 11 Arkitekta um hönnunarvinnu í Sundahöfn.
Hafnarstjórn veitir hafnarstjóra heimild til að ganga til samninga við M11 arkitekta skv. framlagðri hönnunaráætlun.
5.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014
Á 1370. fundi bæjarráðs þann 11. júní 2026 var lagt fram til kynningar erindi frá innviðaráðuneyti þar sem kynnt var til samráðs mál nr. 93/2026, "Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum (Gjaldaákvæði hafnalaga)". Bæjarráð vísaði erindinu til afgreiðslu í hafnarstjórn.
Hafnarstjórn fagnar áformum innviðaráðuneytisins um endurskoðun gjaldaákvæðum hafnalaga og felur hafnarstjóra að senda inn umsögn þess efnis.
Fundi slitið - kl. 13:00.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?