Hafnarstjórn
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Trúnaðarmál - 2026020072
Trúnaðarmál lagt fyrir hafnarstjórn.
Trúnaðarmál kynnt í hafnarstjórn.
2.Flateyrarhöfn 6, Flateyri. Umsókn um lóðarleigusamning - 2025070005
Lagt fram minnisblað frá Hilmari K. Lyngmo, hafnarstjóra dagsett 29.apríl 2026, vegna lóðarinnar Flateyrarhöfn 6.
Hafnarstjóra falið ræða við eiganda mannvirkis.
3.Sumarviðburðasjóður - 2024020083
Tillaga frá hafnarstjóra um að skipa Sædísi Ólöfu Þórsdóttur í úthlutunarnefnd Sumarviðburðasjóðs Hafna Ísafjarðarbæjar, f.h. Ísafjarðarbæjar.
Hafnarstjórn samþykkir tillögu hafnarstjóra.
4.Mastur og tækjahús Þingeyrarhöfn - 2026040263
Borist hefur erindi frá Steindóri Gunnari Magnússyni fyrir hönd Mílu dagsett þann 28. apríl 2026.
Um er að ræða leigu á lóð (aðstöðu) á Þingeyrarhöfn fyrir 16 metra stálmastur/stálstaur sem er u.þ.b. 60 cm í þvermál við undirstöðu og mjókkar niður í u.þ.b. 30 cm í topp. Og tækjahús sem er 3,0 X 3,0 metrar, sjá mynd af samskonar húsi.

Hafnarstjórn leggur til við skipulags- og mannvirkjanefnd að lóð verði stofnuð undir farsímamastur og tækjahús í samræmi við umsókn.
5.Göngustígur frá móttökuhúsi Sundabakka - 2026040264
Við opnun tilboða í yfirborðsefni barst einungis eitt tilboð, frá Græjað og gert ehf., í verkið "Göngustígur yfirborðsefni".
Græjað og gert ehf. Kr. 40.471.500 86%
Kostnaðaráætlun Kr. 47.200.000
Græjað og gert ehf. Kr. 40.471.500 86%
Kostnaðaráætlun Kr. 47.200.000
Hafnarstjórn leggur til að gengið verði til samninga við Græjað og gert ehf.
6.Upplýsingaskilti fyrir Hornstrandaferðalanga - 2026040272
Borist hefur erindi frá Einari Daníelssyni fyrir hönd Slysavarnafélagsins Landsbjargar dags. 29. apríl 2026.
Á síðasta fundi Slysavarnanefndar Slysavarnafélagsins Landsbjargar var rætt um þá hættu sem ferðalangar setja sig í með því að fara yfir á Hornstrandir illa búnir og ekki með á hreinu þær aðstæður sem þar eru.
Hugmyndin gengur út á að félagið taki þátt í ásamt Hafnarsjóði Ísafjarðarbæjar að hanna og setja upp skilti á lykilstöðum við brottfararpunkta, þar sem ferðamenn eru minntir á þær aðstæður sem bíða þeirra handan fjarðarins.
Það er reynsla margra að ekki allir gera sér nægilega grein fyrir því hversu krefjandi og einangrað svæðið er, bæði hvað varðar veður, aðgengi að aðstoð og nauðsynlegan búnað.
Með skýrum skilaboðum væri hægt að: Auka vitund ferðamanna um áhættu og ábyrgð.
Hvetja til betri undirbúnings varðandi útbúnað og klæðnað, QR kóða til að ná í öryggissmáforrit Safetravel.
Hvetja til að skila inn Ferðaáætlun á Travel plan - Safetravel.

Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið og felur hafnarstjóra að vinna málið áfram.
Fundi slitið - kl. 13:00.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?