Hafnarstjórn
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Ósk um samstarf er varðar fljótandi gufubað í Ísafjarðarhöfn - 2022100098
Lagt fram erindi Funhita ehf. dags. 18. febrúar 2026 um stofnun lóðar og gerð lóðaleigusamnings að Kristjánsgötu 23, þar sem fyrirhugað er að reisa gufubað.
Jafnframt eru lagðar fram teikningar og afstöðumynd.
Jafnframt eru lagðar fram teikningar og afstöðumynd.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna málið áfram með skipulagsfulltrúa um stofnun lóðar.
2.Beiðni um úthlutun á lóð suður af Hampiðjunni. - 2026030013
Lögð fram umsókn dagsett 19. febrúar 2026 þar sem Snorri Sigurhjartarson fyrir hönd Hampiðjunnar sækir um úthlutun á lóð suður af núverandi lóðum Hampiðjunnar.
Hafnarstjórn samþykkir afnot af lóðinni til næstu fimm ára með möguleika á framlengingu. Þar sem svæðið er skipulagt sem gámavöllur er ekki vilji til að binda lóðina til lengri tíma að svo stöddu. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna málið áfram.
3.Sundabakki, Suðurtanga. Tímabundin afnot svæðis. - 2026030059
Lögð fram umsókn dags. 4. febrúar 2026, sem barst með tölvupósti frá Arold Hermundarson f.h. KJ Hydraulik þar sem sótt er um tímabundin afnot á svæði á Suðurtanga til samsetningar á eldiskvíum.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna málið áfram og leggja aftur fyrir á næsta fundi.
4.Miðbær Ísafjarðar. Deiliskipulag - 2023050086
Á 667. fundi skipulags og mannvirkjanefnd sem haldinn var þann 12. febrúar 2026 voru lögð fram drög að deiliskipulagi miðbæjar Ísafjarðar, unnin af ráðgjöfum Verkís ehf. fyrir Ísafjarðarbæ í febrúar 2026.
Skipulags- og mannvirkjanefnd bókaði að nefndin legði áherslur á græn svæði næst miðbænum og tengingu þar á milli og fól skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram. Jafnframt vísaði skipulags- og mannvirkjanefnd drögum inn í hafnarstjórn til kynningar.
Er nú málið lagt fram til kynningar í hafnarstjórn.
Skipulags- og mannvirkjanefnd bókaði að nefndin legði áherslur á græn svæði næst miðbænum og tengingu þar á milli og fól skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram. Jafnframt vísaði skipulags- og mannvirkjanefnd drögum inn í hafnarstjórn til kynningar.
Er nú málið lagt fram til kynningar í hafnarstjórn.
Lagt fram til kynningar.
5.Styrktarsjóður Hafna Ísafjarðarbæjar - 2025010205
Lagt er fram minnisblað Hilmars K. Lyngmo, hafnarstjóra, dags. 2. mars 2026 um tillögu að keppnislýsingu og auglýsingu fyrir samkeppni um útilistaverk á Ísafirði.
Jafnframt er lögð fram tillaga að auglýsingu fyrir samkeppni um útilistaverk.
Jafnframt er lögð fram tillaga að auglýsingu fyrir samkeppni um útilistaverk.
Hafnarstjórn samþykkir að auglýsa samkeppni um útilistaverk.
6.Samningur um rekstur upplýsingamiðstöðvar ferðamála á Þingeyri 2024-2025 - 2024010202
Lagður fram til kynningar samningur við handverkshópinn Koltru um rekstur upplýsingamiðstöðvar á Þingeyri 2026-2028.
Lagt fram til kynningar.
7.Ársfjórðungsuppgjör 2025 - 2025050010
Lögð fram til kynningar samantekt á stöðu framkvæmda í árslok 2025. Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir framkvæmdum að fjárhæð 520 m.kr. en í lok árs hefur verið framkvæmt fyrir 414 milljónir króna. Framkvæmt var því fyrir 106 m. kr minna en áætlað var.
Lagt fram til kynningar
8.Landtenging fyrir skemmtiferðaskip - 2026030044
Lagt fram minnisblað Hilmars K. Lyngmo, hafnarstjóra, dags. 3. mars 2026, þar sem fjallað er um möguleika á landtenginu skemmtiferðaskipa við rafmagn.
Hafnarstjórn tekur vel í erindið og gefur hafnarstjóra heimild til að vinna málið áfram.
9.Hafnasamband Íslands - ýmis erindi og fundargerðir 2023-2026 - 2023010276
Lögð fram til kynningar fundargerð 480. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands en fundur fór fram þann 16. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.
10.Cruise Iceland - ýmis erindi 2026-2027 - 2026030045
Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Cruise Iceland en fundir voru haldnir þann 18. janúar 2026 og 12. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 12:55.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?