Hafnarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
267. fundur 28. janúar 2026 kl. 12:00 - 12:45 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Magnús Einar Magnússon formaður
  • Matthildur Á Helgad. Jónudóttir varamaður
    Aðalmaður: Catherine Patricia Chambers
  • Jóhann Birkir Helgason aðalmaður
  • Jóhann Bæring Gunnarsson varamaður
    Aðalmaður: Sædís Ólöf Þórsdóttir
  • Ólafur Baldursson aðalmaður
Starfsmenn
  • Tinna Ólafsdóttir upplýsingafulltrúi
  • Hilmar Kristjánsson Lyngmo hafnarstjóri
Fundargerð ritaði: Tinna Ólafsdóttir upplýsingafulltrúi
Dagskrá

1.Flateyrarhöfn 6, Flateyri. Umsókn um lóðarleigusamning - 2025070005

Kynnt svarbréf hafnarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 19. desember 2025, til Bryggjuhúss ehf. og Arctic Odda ehf., vegna umsóknar Arctic Odda um endurnýjun lóðarleigusamnings vegna fasteignarinnar Flateyrarhöfn 6.
Einnig kynnt svarbréf frá Logos lögmannsþjónustu, dags. 8. janúar, fyrir hönd Bryggjuhúss ehf. vegna sama máls.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna málið áfram.

2.Samningur um rekstur upplýsingamiðstöðvar ferðamála á Þingeyri 2024-2025 - 2024010202

Lagður fram til kynningar og umræðu þjónustukaupasamningur við Koltru 2026-2028 vegna upplýsingamiðstöðvar á Þingeyri.

Athugasemdir komu frá fulltrúa Koltru eftir yfirlestur á samningsdrögum þar sem meðal annars var óskað eftir að samningsupphæð verði tengd vísitölu.
Hafnarstjórn samþykkir beiðni um að tengja samningsupphæð við vísitölu neysluverðs og felur hafnarstjóra að uppfæra samninginn og undirrita hann fyrir hönd hafnarsjóðs.

3.Skipulag á hafnarsvæðum vegna móttöku skemmtiferðaskipa - Sundabakki - 2024100012

Lagt fram tilboð frá VH Hús vegna tveggja söluhúsa á torg við göngustíga. Tilboðið hljóðar upp á 1.719.000 kr.
Hafnarstjóri óskar eftir heimild frá hafnarstjórn til að ganga frá kaupum.
Hafnarstjórn samþykkir kaup á tveimur söluhúsum.

4.Skipulag á hafnarsvæðum vegna móttöku skemmtiferðaskipa - Sundabakki - 2024100012

Lagt fram minnisblað hafnarstjóra, dags. 27. janúar 2026, þar sem óskað er eftir heimild til að panta bryggju frá Köfunarþjónustunni, sem þjóna mun ferðaþjónustubátum í Sundahöfn.
Einnig lögð fram kostnaðaráætlun frá Köfunarþjónustunni, dags. 26. janúar 2026.
Hafnarstjórn samþykkir að samið verði við Köfunarþjónustuna um flotbryggju í Sundahöfn.

5.Cruise Iceland - ýmis erindi 2024-2025 - 2024090023

Kynnt skýrsla framkvæmdastjóra Cruise Iceland, dags. desember 2025.
Einnig kynnt samantekt Cruise Iceland um komur skemmtiferðaskipa og hafnartekjur á Íslandi 2025.
Skýrsla og samantekt Cruise Iceland lagðar fram til kynningar.

6.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026 - 2026010014

Lögð fram umsagnarbeiðni úr samráðsgátt stjórnvalda, dags. 23. janúar 2026, innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 15/2026, „Drög að frumvarpi til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga“.
Umsagnarfrestur er til og með 8. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

7.Hafnasamband Íslands - ýmis erindi og fundargerðir 2023-2025 - 2023010276

Kynntar fundargerðir funda 476-479 hjá stjórn Hafnasambands Íslands. Fundirnir fóru fram þann 22. október, 18. nóvember, 3. desember 2025 og 19. janúar 2026.

Einnig kynnt skýrsla sambandsins um framtíðarstefnu hafna á Íslandi.
Fundargerðir og skýrsla Hafnasambands lagðar fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 12:45.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?