Hafnarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
222. fundur 01. júní 2021 kl. 12:00 - 12:39 í fundarherbergi 4. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Marzellíus Sveinbjörnsson formaður
  • Anna Ragnheiður Grétarsdóttir aðalmaður
  • Sigríður Gísladóttir aðalmaður
  • Högni Gunnar Pétursson aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðmundur M Kristjánsson hafnarstjóri
  • Tinna Ólafsdóttir upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði: Tinna Ólafsdóttir upplýsingafulltrúi
Dagskrá
Högni Gunnar er viðstaddur fundinn í gegnum fjarfundabúnað.

1.Áform Artic Fish og Arnarlax um byggingu sláturhúss - 2020090004

Lagt fram minnisblað Birgis Gunnarssonar, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, dags. 28. maí 2021, vegna mögulegra áforma Arctic Fish og Arnarlax um uppbyggingu á Flateyri.
Í minnisblaðinu er óskað eftir afstöðu hafnarstjórnar varðandi þá málaflokka sem eru á forræði nefndarinnar.
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdir við framsetningu málsins í minnisblaði bæjarstjóra og leggur til við bæjarstjórn að afgreiða málið á grundvelli minnisblaðs.

2.Ársreikningur hafnarsjóðs 2020 - 2021030109

Lagður fram endurskoðaður ársreikningur hafnarsjóðs fyrir árið 2020.
Ársreikningur lagður fram til kynningar.
Fylgiskjöl:

3.Lánsumsókn hafnarsjóður 2021 - 2021050049

Lögð fram til kynningar tillaga sem samþykkt var á 476. fundi bæjarstjórnar þann 20. maí 2021:
„Tillaga frá 1153. fundi bæjarráðs sem fram fór þann 17. maí 2021, um að bæjarstjórn samþykki hér með að veita einfalda ábyrgð vegna lántöku Ísafjarðarhafna hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 273.000.000 til 13 ára, með föstum verðtryggðum 1,12% vöxtum, láns í lánaflokknum LSS34. Ábyrgð þessi er veitt í samræmi við heimild í 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, og að bæjarstjórn veiti Lánasjóðnum veð í tekjum sínum til tryggingar þeirri ábyrgð, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sömu laga. Ábyrgðin tekur til greiðslu höfuðstóls láns þessa, ásamt vöxtum og verðbótum auk hvers kyns innheimtukostnaðar.

Lánið er tekið til að fjármagna uppbyggingu á höfn að Sundabakka í Skutulsfirði, en um 670 milljón króna framkvæmd er að ræða, ríkisstyrkt um 60%, sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Þá er lagt til að bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar skuldbindi hér með sveitarfélagið sem eiganda Ísafjarðarhafna til að selja ekki eignarhlut sinn til einkaaðila, í heild eða að hluta, fram til þess tíma að lán þetta er að fullu greitt. Fari svo að Ísafjarðarbær selji eignarhlut í Ísafjarðarhöfnum til annarra opinberra aðila, skuldbindur Ísafjarðarbær sig til þess að tryggja að samhliða yfirtaki nýr eigandi ábyrgð á láninu í hlutfalli við eignarhlut sinn í félaginu.

Jafnframt er lagt til að Birgi Gunnarssyni, kt. 050263-5419, verði veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess að samþykkja f.h. Ísafjarðarbæjar veitingu ofangreindrar ábyrgðar og veðsetningar og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast veitingu ábyrgðar þessarar.“
Tillaga lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 12:39.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?