Fræðslunefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
325. fundur 07. nóvember 2012 kl. 16:00 - 16:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Helga Dóra Kristjánsdóttir Varaformaður
  • Auður Helga Ólafsdóttir Aðalmaður
  • Ólöf Hildur Gísladóttir Aðalmaður
  • Sigurlína Jónasdóttir starfsmaður Ísafjarðarbæjar
  • Margrét Halldórsdóttir starfsmaður Ísafjarðarbæjar
Fundargerð ritaði: Sigurlína Jónasdóttir Skóla- og sérkennslufulltrúi
Dagskrá
Mættir áheyrnarfulltrúar fyrir leikskóla: Sif Huld Albertsdóttir, fulltrúi foreldra. Svava Rán Valgeirsdóttir fulltrúi leikskólastjóra mætti ekki, og engin í hennar stað.
Mættir áheyrnarfulltrúar fyrir grunnskóla: Sveinfríður Olga Veturliðadóttir, fulltrúi skólastjóra, Edda Graichen fulltrúi kennara

1.Ársskýrslur 2011-2012 - 2012090087

Lagðar fram til kynningar ársskýrslur leikskólanna Eyrarskjóls, Sólborgar, Grænagarðs, Tjarnarbæjar og Laufáss fyrir skólaárið 2011-2012.
Fræðslunefnd þakkar fyrir greinargóðar skýrslur.

2.Starfsmarkmið 2012-2013 - 2012090088

Lögð fram starfsmarkmið leikskólanna Eyrarskjóls, Sólborgar, Grænagarðs, Tjarnarbæjar og Laufáss fyrir skólaárið 2012-2013.
Lagt fram til kynningar.

3.Skólaskýrsla 2012 - 2012110008

Lögð fram Skólaskýrsla 2012 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.

4.Fréttabréf - 2012030049

Lagt fram fréttarbréf septembermánaðar frá Grunnskólanum á Ísafirði.
Lagt fram til kynningar.

5.Skólavogin - 2011100063

Kynning á skólavoginni fyrir nefndarmenn.
Margrét Halldórsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs kynnti fyrir nefndarmönnum hvernig vefur skólavogarinnar nýtist okkur og hvaða upplýsingar hægt er að fá þaðan og óskaði eftir frá nefndarmönnum hvað þeir vildu helst fá upplýsingar um.
Önnur mál:
6. Sveinfríður Olga Veturliðadóttir hvatti nefndarmenn til að koma eftir kl. 11.30 þann 8. nóvember, sem er dagur gegn einelti og skrifa undir áskorun gegn einelti.
7. Ólöf Hildur Gísladóttir óskaði eftir upplýsingum um aðsókn í mötuneyti Grunnskólans Ísafirði og hvaða viðhorf eru til möt

Fundi slitið - kl. 16:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?