Fræðslunefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
378. fundur 30. mars 2017 kl. 08:05 - 09:15 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir formaður
  • Bragi Rúnar Axelsson varaformaður
  • Martha Kristín Pálmadóttir aðalmaður
  • Gunnhildur Björk Elíasdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Margrét Halldórsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
  • Guðrún Birgisdóttir skóla- og sérkennslufulltrúi
Fundargerð ritaði: Guðrún Birgisdóttir skóla- og sérkennslufulltúi
Dagskrá
Jónas Þór Birgisson mætti ekki og enginn í hans stað.
Fundinn sátu undir grunnskólamálum, Sveinfríður Olga Veturliðadóttir, fulltrúi skólastjórnenda og Sveinbjörn Magnason fulltrúi foreldra. Undir málefnum leikskóla sátu fundinn Helga Björk Jóhannsdóttir, fulltrúi skólastjórnenda og Bryndís Gunnarsdóttir sem fulltrúi starfsfólks.

1.Verkefnalisti fræðslunefndar - 2014030064

Lagður fram verkefnalisti fræðslunefndar.
Lagt fram til kynningar

2.Kennslumínútnafjöldi í list- og verkgreinum í grunnskólum - 2017030019

Lagður fram tölvupóstur Margrétar Harðardóttur, f.h. mennta- og menningarmálaráðuneytis, dagsettur 7. mars sl., um fréttatilkynningu mennta- og menningarmálaráðuneytis með niðurstöðum úrvinnslu á upplýsingum frá Hagstofu Íslands um kennslustundafjölda í list- og verkgreinum í grunnskólum fyrir skólaárin 2013-2014, 2014-2015 og 2015-2016. Í tilkynningunni er lögð áhersla á að sveitarstjórnir sjái til þess að allir nemendur fái þann lágmarkskennslumínútnafjölda á skólaári sem þeim ber.

Bæjarráð lagði erindið fram til kynningar á 967. fundi sínum, 13. mars sl., og vísaði til fræðslunefndar.
Fræðslunefnd þakkar fyrir þær upplýsingarnar sem komu fram á fundinum og telur að þær séu fullnægjandi.

3.BETT2017 - 2017030073

Lögð fram til kynningar skýrsla sviðsstjóra skóla-og tómstundasviðs og skólastjórnenda í grunnskólum Ísafjarðarbæjar, vegna ferðar á Bett ráðstefnuna sem haldin var í lok janúar í London.
Fræðslunefnd þakkar fína kynningu.

4.Fjárhagsáætlun 2018 - 2017020049

Kynnt minnisblað Gísla H.Halldórssonar bæjarstjóra, um gjaldskrá 2018.
Nefndin gerir ekki athugasemdir við uppbyggingu gjaldskrár að svo komnu máli, en vísar minnispunktum áfram til vinnu við endurskoðun skólastefnu.

5.Læsisstefna ísafjarðarbæjar - 2016080050

Lagt fram lokaskjal um lestrastefnu Ísafjarðarbæjar. Vinna við hana hófst haustið 2014 og unnið hefur verið í samvinnu við kennara og stjórnendur leik- og grunnskóla Ísafjarðarbæjar.
Fræðslunefnd þakkar fyrir fína lestrarstefnu.

6.Endurskoðun á skólastefnu Ísafjarðarbæjar - 2016100048

Kynnt drög að skipulagi á endurskoðun skólastefnu Ísafjarðarbæjar.
Drög að vinnu samþykkt og að vinnu verði haldið áfram.

7.Skólanámskrár leikskólanna - 2014120059

Lögð fram endurskoðuð skólanámskrá frá Heilsuleikskólanum Laufási á Þingeyri. Á grunni aðalnámskrár og námskrár leikskóla Ísafjarðarbæjar mótar hver leikskóli sína skólanámskrá. Skólanámskrá fjallar um þau gildi sem starf leikskólans byggist á og þá hugmyndafræði sem tekið er mið af. Námskráin var samþykkt af foreldrarráði leikskólans 9. febrúar 2017.
Lagt fram til kynningar og fræðslunefnd þakkar fyrir.
Bragi R Axelsson þurfti að fara af fundi kl. 8:45

Fundi slitið - kl. 09:15.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?