Fræðslunefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
373. fundur 04. nóvember 2016 kl. 08:00 - 10:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir formaður
  • Bragi Rúnar Axelsson varaformaður
  • Martha Kristín Pálmadóttir aðalmaður
  • Sif Huld Albertsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Margrét Halldórsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
  • Guðrún Birgisdóttir skóla- og sérkennslufulltrúi
Fundargerð ritaði: Guðrún Birgisdóttir Skóla- og sérkennslufulltrúi
Dagskrá
Fundinn sátu líka Sveinfríður Olga Veturliðadóttir, fulltrúi grunnskólastjórnenda og Helga Björk Jóhannsdóttir, fulltrúi leikskólastjórnenda.

1.Verkefnalisti fræðslunefndar - 2014030064

Lagður fram verkefnalisti fræðslunefndar.
Gert var grein fyrir þeim verkefnum sem liggja fyrir og stöðu þeirra.

2.Öryggishandbók leik- og grunnskóla - 2016080062

Lögð fram öryggishandbók fyrir leik- og grunnskóla.
Lokadrög af Handbók um öryggi barna í leik- og grunnskólum Ísafjarðarbæjar lögð fram. Fræðslunefnd samþykkir handbókina.

3.Endurskoðun á skólastefnu Ísafjarðarbæjar - 2016100048

Lagt fram minnisblað frá Margréti Halldórsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs Ísafjarðarbæjar.
Fræðslunefnd felur starfsmönnum skóla- og tómstundasviðs að hefja vinnu við endurskoðun skóla-/ menntastefnu Ísafjarðarbæjar, í samræmi við umræður á fundinum.

Fundi slitið - kl. 10:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?