Fræðslunefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
372. fundur 06. október 2016 kl. 08:10 - 10:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Bragi Rúnar Axelsson varaformaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Martha Kristín Pálmadóttir aðalmaður
  • Gunnhildur Björk Elíasdóttir aðalmaður
  • Auður Helga Ólafsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Margrét Halldórsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
  • Guðrún Birgisdóttir skóla- og sérkennslufulltrúi
Fundargerð ritaði: Guðrún Birgisdóttir Skóla- og sérkennslufulltrúi
Dagskrá
Fundinn sátu, undir grunnskólamálum, Sveinfríður Olga Veturliðadóttir sem fulltrúi skólastjórnenda, Bryndís Birgisdóttir sem fulltrúi kennara og Harpa Lind Kristjánsdóttir sem fulltrúi foreldra grunnskólabarna. Undir málefnum leikskóla sátu fundinn Svava Rán Valgeirsdóttir sem fulltrúi skólastjórnenda, Bryndís Gunnarsdóttir sem fulltrúi starfsfólks og Bryndís Ósk Jónsdóttir sem fulltrúi foreldra leikskólabarna.

1.Verkefnalisti fræðslunefndar - 2014030064

Lagður fram verkefnalisti fræðslunefndar.
Gerð var grein fyrir þeim verkefnum sem liggja fyrir og stöðu þeirra.

2.Áætlanir og skýrslur grunnskóla skólaárið 2016-2017 - 2016090084

Lagðar fram starfsáætlanir Grunnskólans á Suðureyri, Grunnskóla Önundarfjarðar og Grunnskólans á Þingeyri fyrir skólaárið 2016-2017
Lagt fram til kynningar.Fræðslunefnd þakkar greinagóðar áætlanir.

4.Skýrslur úr ferðum Skema - 2016090057

Lagðar fram skýrslur frá ferðum Skema til Ísafjarðarbæjar.
Fræðslunefnd þakkar ráðgjöfunum fyrir greinargóðar skýrslur.

5.Skólavogin - 2011100063

Lögð fram vinnugögn frá Margréti Halldórsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, er lúta að niðurstöðum Skólavogarinnar.
Lagt fram til kynningar.

6.Ársskýrslur leikskóla 2015-2016 - 2016070010

Lagðar fram ársskýrslur leikskólanna Eyrarskjóls, Sólborgar, Tjarnarbæjar og Laufáss fyrir skólaárið 2015-2016
Fræðslunefnd þakkar greinargóðar skýrslur.

7.Sumarlokarnir Eyrarskjóls og Sólborgar 2017 - 2016090090

Lagt fram minnisblað dagsett 26. september 2016, frá Guðrúnu Birgisdóttur, skóla- og sérkennslufulltrúa, er varðar sumarlokanir leikskólanna Eyrarskjóls og Sólborgar sumarið 2017.
Afstaða fræðslunefndar Ísafjarðarbæjar til lokana leikskóla undanfarin ár hefur miðast af því að mæta allt í senn þörfum foreldra fyrir sveigjanleika, þörfum atvinnulífssins fyrir mismunandi frítöku starfsmanna sinna og óskum leikskóla um lokunartíma. Það hefur verið afstaða nefndarinnar að foreldrum skuli að lágmarki tryggt það val að þeir geti valið um eitthvað tímabil. Var það á síðastliðnu skólaári ein vika öðru hvoru megin við þriggja vikna lokun. Er það mat fræðslunefndar að taka verði tillit til óska foreldra um val á þeim grundvelli að tryggja verði að sem flestir foreldrar/forráðamenn barna geti eytt sem mestu af sínu sumarfríi með börnum sínum. Það er því afstaða fræðslunefndar Ísafjarðarbæjar að sumarlokanir leikskólanna Eyrarskjóls og Sólborgar verði með sambærilegum hætti og sumarið 2016, það er, lokað í 3 vikur samfleytt og foreldrar hafi val um viku öðru hvoru megin við þá lokun.

8.Framtíðarsýn í dagvistarmálum Ísafjarðarbæjar. - 2013010070

Staða dagvistarmála.
Margrét Halldórsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs, fór yfir stöðu mála nýrrar leikskóladeildar í kjallara Tónlistaskólans.

Fundi slitið - kl. 10:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?