Fræðslunefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
363. fundur 07. janúar 2016 kl. 08:00 - 10:00 Í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.
Nefndarmenn
  • Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir formaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Martha Kristín Pálmadóttir aðalmaður
  • Gunnhildur Björk Elíasdóttir aðalmaður
  • Elísabet Samúelsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Bragi Rúnar Axelsson varaformaður
Starfsmenn
  • Margrét Halldórsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
  • Guðrún Birgisdóttir skóla- og sérkennslufulltrúi
Fundargerð ritaði: Guðrún Birgisdóttir Fundarboð fræðslunefndar
Dagskrá
Þá sátu fundinn, undir grunnskólamálum, Sveinfríður Olga Veturliðadóttir fulltrúi skólastjóra og Árný Herbertsdóttir sem fulltrúi kennara. Undir málefnum leikskóla sátu fundinn Helga Björk Jóhannsdóttir fulltrúi skólastjórnenda.

1.Ferð læsisráðgjafa til Ísafjarðarbæjar - 2015120021

Lögð fram skýrsla frá læsisráðgjöfum.
Fræðslunefnd þakkar ráðgjöfunum kærlega fyrir komuna og þessa skýrslu sem er mjög áhugaverð.

2.Bréf foreldra barna í 4. bekk GÍ-2015 - 2015120057

Bréf frá foreldrum barna í 4. bekk GÍ. um niðurstöðurnar úr samræmdu prófunum og hvernig bregðast eigi við þeim.
Fræðslunefnd þakkar bréfið og mun fylgjast með þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til.

3.Niðurstöður Skólavogarinnar 2014-2016 - 2014080033

Lagt fram minnisblað
Starfsmönnum falið að koma með nánari greiningu á niðurstöðum.

4.Kirkjuheimsóknir - 2015120056

Bréf frá Siðmennt um kirkjuheimsóknir.
Fræðslunefnd þakkar fyrir góða ábendingu.

5.Stillum saman strengi - 2014110015

Skýrsla um stöðu mála í skólum Ísafjarðarbæjar.
Lagt fram til kynningar.

6.Ósk um aukningu á stöðugildum Eyrarskjól - 2015090024

Umsókn um greiðslur fyrir stöðu sérkennslustjóra og stuðningsfulltrúa á Eyrarskjóli.
Fræðslunefnd leggur til við bæjarstjórn að hækka stöðu sérkennslustjóra úr 40% í 65%, í framhaldi mun skóla- og sérkennslufulltrúi meta þörf fyrir enn hærra stöðugildi. Búið er að afgreiða 100% stöðu stuðningsfulltrúa, en beðið verður með afgreiðslu 60% stuðningsfulltrúa á meðan greining fer fram.

Fundi slitið - kl. 10:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?