Fræðslunefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
316. fundur 21. desember 2011 kl. 16:00 - 17:15 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Fundargerð ritaði: Sigurlína Jónasdóttir 316. fundur fræðslunefndar
Dagskrá
Mættir áheyrnarfulltrúar fyrir leikskólamál: Sif Huld Albertsdóttir, fulltrúi foreldra og Elsa María Thompson, fulltrúi leikskólastjóra.

Mættir áheyrnarfulltrúar fyrir grunnskólamál: Ólöf Oddsdóttir, fulltrúi kennara, Elfar Reynisson, fulltrúi kennara og Martha Lilja Marthensdóttir, fulltrúi foreld

1.Skóladagatöl 2011-2012 - 2011060042

Lagt fram minnisblað frá Sigurlínu Jónasdóttur, leikskólafulltrúa, þar sem kemur fram að Leikskólarnir Eyrarskjól, Sólborg og Tjarnarbær hafa lokað í 4 vikur á sumrin, en Laufás og Grænigarður í 5 vikur. Flestir kennarar skólanna eiga mun fleiri sumarfrísdaga, heldur en lokunin dekkar og hefur oft verið álag í leikskólunum þegar dekka þarf frí sem tekið er umfram lokun. Afleysingarstaðan hefur varla nægt til að leysa af og því hefur orðið til álag á starfsfólkið. Með því að loka öllum skólunum í 5 vikur samfellt ná kennararnir að taka fleiri sumarfrísdaga og minnkar því álagið á skólann í framhaldi af því.

Fræðslunefnd leggur til að öllum leikskólum Ísafjarðarbæjar verði lokað í 5 vikur og að Eyrarskjól og Sólborg loki ekki samtímis lengur en tvær vikur.

2.Foreldrakönnun 2011 - 2011120026

Lagðar fram til kynningar niðurstöður könnunar sem lögð var fyrir foreldra leikskólabarna í Ísafjarðarbæ. Í heildina eru foreldrar ánægðir með leikskólana.

Fræðslunefnd lýsir yfir ánægju með niðurstöður könnunarinnar.

3.Trúnaðarmál - 2011120043

Lagt fram trúnaðarmál.

Eitt trúnaðarmál tekið fyrir sem fært var til bókar og geymt í trúnaðarmálamöppu fræðslunefndar.

4.Trúnaðarmál - 2011120044

Lagt fram trúnaðarmál

Eitt trúnaðarmál tekið fyrir sem fært var til bókar og geymt í trúnaðarmálamöppu fræðslunefndar.

Fundi slitið - kl. 17:15.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?