Fræðslunefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
315. fundur 23. nóvember 2011 kl. 16:00 - 18:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Fundargerð ritaði: Sigurlína Jónasdóttir 315. fundur fræðslunefndar
Dagskrá
Mættir áheyrnafulltrúar fyrir leikskólamál: Sif Huld Albertsdóttir, fulltrúi foreldra og Elsa María Thompson, fulltrúi skólastjóra.

Mættir áheyrnarfulltrúar fyrir grunnskólamál: Ólöf Oddsdóttir, fulltrúi kennara. Magnús S. Jónsson, fulltrúi skólastjóra, Elfar Reynisson, fulltrúi kennara og Martha L

1.Fjárhagsáætlun 2012 og þriggja ára áætlun - 2011080013

Lagt fram minnisblað frá Sigurlínu Jónasdóttir daggæslufulltrúa með nánari kostnaðargreiningu á niðurgreiðslu til dagforeldra, sem óskað var eftir á 314. fundi fræðslunefndar.

Fræðslunefnd leggur til við bæjarstjórn að niðurgreiðsla til dagforeldra verði 30.000 kr. fyrir 8 tíma vistun og að fjármálastjóra verði falið að finna út afsláttargjaldið með hliðsjón af afsláttargjaldi leikskóla.

2.Opnunartími Eyrarskjóls - 2011110052

Lagt fram minnisblað frá Sigurlínu Jónasdóttir leikskólafulltrúa, dagsett 21. nóvember 2011, um opnunartíma leikskólans Eyrarskjóls. Leikskólinn er opinn til kl. 17.15, en lítil eftirspurn er eftir vistunartíma eftir kl. 16.15 og því þarf að ræða hvort að stytta eigi opnunartíma leikskólans.

Fræðslunefnd leggur til að ekki verði styttur opnunartími á Eyrarskjóli að svo stöddu, heldur verði staðan endurskoðuð í janúar 2012.

3.Stefnumótum í atvinnumálum Ísafjarðarbæjar - 2010080057

Lagðir fram umræðupunktar sem óskað var eftir að fræðslunefnd ræddi vegna vinnu við stefnumótun í atvinnumálum.

Fræðslunefnd frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar nefndarinnar.

4.REGLUGERÐ um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum - 2011110053

Lögð fram ný reglugerð nr. 1040/2011, um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum

Lagt fram til kynningar.

Önnur mál:
a) Sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs svaraði fyrirspurn Benedikts Bjarnasonar frá 314. fundi fræðslunefndar þannig að skólinn ber ábyrgð á nemendum á skólatíma en jafnframt að nemendur bera ábyrgð á eigin námi, framkomu, háttsemi og samkiptum við skólasystkin, jafnframt ber nemendum að

Fundi slitið - kl. 18:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?