Fræðslunefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
350. fundur 06. nóvember 2014 kl. 08:00 - 10:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir formaður
  • Bragi Rúnar Axelsson varaformaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Martha Kristín Pálmadóttir aðalmaður
  • Gunnhildur Björk Elíasdóttir aðalmaður
  • Elísabet Samúelsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigurlína Jónasdóttir skóla- og sérkennslufulltrúi
  • Margrét Halldórsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
Fundargerð ritaði: Sigurlína Jónasdóttir Skóla- og sérkennslufulltrúi
Dagskrá
Mættir áheyrnarfulltrúar fyrir grunnskólamál: Sveinfríður Olga Veturliðadóttir, fulltrúi skólastjóra, og Árný Herbertsdóttir og Edda Graichen, fulltrúar kennara.
Mættir áheyrnarfulltrúar fyrir leikskólamál: Helga Björk Jóhannsdóttir, fulltrúi leikskólastjóra, og Sif Huld Albertsdóttir, fulltrúi fore

1.Verkefnalisti fræðslunefndar - 2014030064

Lagður fram verkefnalisti fræðslunefndar.
Gerð var grein fyrir þeim verkefnum sem liggja fyrir og eru í vinnslu.

2.Endurskoðun erindisbréfa - 2012110034

Lagt fram endurskoðað erindisbréf fyrir fræðslunefnd.
Fræðslunefnd samþykkir erindisbréfið með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum.

3.Stafræn smiðja (Fab Lab) - 2011100054

Lagður fram samningur um Fab Lab smiðju á Ísafirði.
Lagt fram til kynningar.

4.Fréttabréf grunnskóla 2014-2015 - 2014090072

Lögð fram fréttabréf Grunnskólans á Ísafirði og Grunnskóla Önundarfjarðar.
Fræðslunefnd þakkar fyrir greinargóð og skemmtileg fréttabréf.

5.Stillum saman strengi - 2014110015

Lagt fram vinnuskjal um aðgerðaráætlun skóla í Ísafjarðarbæ, sem ber heitið Stillum saman strengi og einnig lagt fram vinnuskjal um samantekt á námsárangri skólabarna í Ísafjarðarbæ.
Lagt fram til kynningar.

6.Afsláttur af leikskólagjaldi - 2014110003

Lagt fram minnisblað, dagsett 5. nóvember 2014, frá Sigurlínu Jónasdóttur, skóla- og sérkennslufulltrúa, þar sem rætt er um fyrirkomulag afsláttar af vistgjaldi í leikskóla. Eins og reglurnar eru núna fá einstæðir foreldrar og ef báðir foreldrar eru námsmenn 35% afslátt af vistgjaldi og upp hafa komið hugmyndir um að tekjutengja afsláttinn frekar og þannig eigi allir kost á að sækja um ef þeir falla undir fyrirfram ákveðin tekjuviðmið.
Fræðslunefnd telur ekki ráðlagt að gera breytingar á afslættinum.

7.Ósk um aukningu á stöðugildum á Grænagarði - 2014030062

Lagt fram bréf, dagsett 28. október 2014, frá Maríu Valberg, skólastjóra leikskólans Grænagarðs, þar sem hún óskar eftir að fá að auka stöðugildi við leikskólann um 12,5% þar sem börnum hefur fjölgað nokkuð í leikskólanum.
Fræðslunefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.

Fundi slitið - kl. 10:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?