Fræðslunefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
347. fundur 21. ágúst 2014 kl. 08:00 - 10:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir formaður
  • Bragi Rúnar Axelsson varaformaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Martha Kristín Pálmadóttir aðalmaður
  • Gunnhildur Björk Elíasdóttir aðalmaður
  • Sigurlína Jónasdóttir skóla- og daggæslufulltrúi
  • Margrét Halldórsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlína Jónasdóttir Skóla- og sérkennslufulltrúi
Dagskrá
Mættir áheyrnarfulltrúar fyrir tónlistarskólamál: Ingunn Ósk Sturludóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Ísafjarðar, Hulda Bragadóttir, aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Ísafjarðar og Margrét Gunnarsdóttir, skólastjóri Listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar. Einnig mætti Jón Páll Hreinsson, formaður Tónlist

1.Verkefnalisti fræðslunefndar - 2014030064

Lagður fram verkefnalisti fræðslunefndar.
Gerð var grein fyrir þeim verkefnum sem liggja fyrir og eru í vinnslu.

2.Skýrsla Tónlistarskóla Ísafjarðar 2014 - 2014080026

Lögð fram skýrsla um starf Tónlistarskóla Ísafjarðar skólaárið 2013-2014.
Lagt fram til kynningar. Fræðslunefnd felur sviðsstjóra skóla- og tómstundssviðs að útbúa leiðbeinandi form um hvað skýrslan á að innihalda.

3.Úthlutunarlíkan og samstarfssamningur - 2013120028

Lagður fram samstarfssamningur Tónlistarskóla Ísafjarðar annarsvegar og Listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar hinsvegar við Ísafjarðarbæ og úthlutunarlíkan tónlistarskóla. Málið var áður á dagskrá á 345. fundi fræðslunefndar.
Fræðslunefnd leggur til við bæjarstjórn að drög að samningi við TÍ og LRÓ og úthlutunarlíkanið verði samþykkt með þeim breytingum sem komu fram á fundinum.

4.Endurskoðun erindisbréfa nefnda - 2012110034

Lagt fram erindisbréf fyrir fræðslunefnd Ísafjarðarbæjar.
Málið var áður tekið fyrir á 346. fundi fræðslunefndar.
Fræðslunefnd samþykkir erindisbréfið með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum.

5.Fjárhagsáætlun 2015 - 2014080027

Lögð fram gjaldskrá skóla- og tómstundasviðs sem gildir frá 1. janúar 2014.
Fræðslunefnd felur starfsmönnum skóla- og tómstundasviðs að leggja fram tillögu að gjaldskrárbreytingum til bæjarstjórnar í samræmi við umræður á fundinum.

6.Þriggja ára áætlun og fimm ára áætlanir - 2014020113

Lögð fram drög að fimm ára áætlun skóla- og tómstundasviðs.
Fræðslunefnd óskar eftir að skjalið verði yfirfarið og lagt fyrir aftur.

7.Niðurstöður 2014 - 2014060001

Lögð fram skýrsla frá Rannsóknum og greiningu um Hagi og líðan ungs fólks í Ísafjarðarbæ. Niðurstöður rannsóknar meðal nemenda í 8., 9. og 10. bekk árið 2014 og einnig skýrsla um vímuefnanotkun framhaldsskólanema á Íslandi 2013 sem unnin var fyrir Menntaskólann á Ísafirði.
Lagt fram til kynningar.

8.Stjúptengsl - námskeið fyrir fagfólk - 2014080030

Lagt fram bréf, dagsett 16. júlí 2014, frá Valgerði Halldórsdóttur félagsráðgjafa sem rekur Vensl ehf. og er ritstjóri vefsins www.stjuptengsl.is, þar sem hún er að kynna námskeið sem ætlað er fagfólki sveitarfélaga sem vinnur með börnum og ungmennum og fjölskyldum þeirra. Námskeiðið ber heitið: Stjúptengsl - fyrir fagfólk.
Lagt fram til kynningar.

9.Niðurstöður Skólavogarinnar 2014-2016 - 2014080033

Margrét Halldórsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundsviðs, kynnti fyrir nefndarmönnum hvernig Skólavogin virkar. Markmið Skólavogarinnar er að gefa sveitarstjórnum og skólastjórnendum möguleika á að fylgjast kerfisbundið með þróun ýmissa þátta í skólastarfinu. Samræmdum upplýsingum sem liggja til grundvallar endanlegri niðurstöðu er safnað inn fyrir hvern skóla fyrir sig. Úr þeim er síðan unnið á samræmdan hátt fyrir hvert sveitarfélag sem er aðili að þessu verkefni.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?