Fræðslunefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
334. fundur 13. ágúst 2013 kl. 16:00 - 18:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Helga Dóra Kristjánsdóttir varaformaður
  • Auður Helga Ólafsdóttir aðalmaður
  • Gísli Halldór Halldórsson formaður
  • Sigurlína Jónasdóttir skóla- og daggæslufulltrúi
  • Margrét Halldórsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
  • Hólmfríður Vala Svavarsdóttir aðalmaður
Fundargerð ritaði: Sigurlína Jónasdóttir Skóla- og sérkennslufulltrúi
Dagskrá
Sigurður Hafberg mætti ekki og engin í hans stað.
Mættir áheyrnarfulltrúar fyrir leikskólamál: Helga Björk Jóhannsdóttir fulltrúi skólastjóra og Sif Huld Albertsdóttir fulltrúi foreldra.
Mættir áheyrnafulltrúar fyrir grunnskólamál: Sveinfríður Olga Veturliðadóttir fulltrúi skólastjóra, Edda Graichen

1.Ósk um að ráða tvo starfsmenn á Sólborg - 2013050012

Lagt fram bréf, dagsett 10. maí 2013, frá Helgu Björk Jóhannsdóttur, leikskólastjóra á Sólborg, þar sem hún óskar eftir að fá að ráða inn tvo starfsmenn í sitthvort 81,25% starfshlutfallið, vegna barna sem þurfa aðstoð í námi.
Erindið var áður á dagskrá fræðslunefndar á 332. fundi nefndarinnar.
Fræðslunefnd leggur til við bæjarráð að erindið verði samþykkt.

2.Leikskóladeild fyrir 5 ára börn í Skutulsfirði, ungbarnadeild og fleiri lausnir í dagvistarmálum - 2013010070

Lagt fram bréf frá foreldraráði Eyrarskjóls, dagsett 21. júní sl. en móttekið 9. júlí sl., þar sem fram koma athugasemdir um framkvæmd og skipulagningu deildarinnar. Foreldraráð óskar eftir að tekið verði tillit til athugasemdanna.
Bæjarráð tók erindið fyrir á 803. fundi sínum.
Fræðslunefnd þakkar allar þær ábendingar sem fram hafa komið og mun ásamt starfsfólki taka tillit til þeirra eins og kostur er.

3.Fjárhagsáætlun 2014 - 2013060033

Margrét Halldórsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs, kynnti vinnu við fjárhagsáætlun fyrir árið 2014 og lagði áherslu á að nefndin kæmi fyrr inn í vinnuferlið.
Fræðslunefnd felur starfsmönnum skóla- og tómstundasviðs að koma með minnisblað á næsta fund nefndarinnar.

4.Skýrslur grunnskóla 2013 - 2013020050

Lagðar fram ársskýrslur og sjálfsmatsskýrslur allra grunnskólanna í Ísafjarðarbæ.
Fræðslunefnd þakkar fyrir skýrslurnar. Ljóst er að mikil gróska er í skólum sveitarfélagsins.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?