Fjallskilanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
9. fundur 29. mars 2017 kl. 13:15 - 14:00 í fundarherbergi 4. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Ásvaldur Magnússon formaður
  • Ómar Dýri Sigurðsson aðalmaður
  • Svala Sigríður Jónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Brynjar Þór Jónasson sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs
Fundargerð ritaði: Brynjar Þór Jónasson sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs
Dagskrá

1.Útigangsfé í Arnarfirði - 2017030100

Formaður fjallskilanefndar leggur fram tölvupóst, dags. 28. mars 2017, frá Matvælastofnun varðandi útigangsfé í Arnarfirði.
Fjallskilanefnd felur sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs Ísafjarðarbæjar að senda hlutaðeigandi gangna- og réttarstjóra svæðisins frá Hjallkárseyri að varnargarði á Mjólkárhlíð, Steinari R. Jónassyni, erindi þess efnis að sést hafi fé á hans leitarsvæði.

2.Fjallskil 2017 - 2017030104

Formaður fjalskilanefndar kynnir fyrirhugaðan fund formanna fjallskilanefnda í fjallskilastjórn.
Fjallskilanefnd Ísafjarðarbæjar felur formanni nefndarinnar að boða til fundarins og vera fulltrúi Ísafjarðarbæjar á fundinum.

3.Fjallskilasamþykkt, skilgreining á einstaka greinum. - 2017030105

Umræða um einstaka greinar fjallskilasamþykktar fyrir Barðastrandar- og Ísafjarðarsýslur.
Fjallskilanefn Ísafjarðarbæjar felur sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs Ísafjarðarbæjar að fá álit bæjarlögmanns á 11. gr. og 12. gr. fjallskilasamþykktar fyrir Barðastrandar- og Ísafjarðarsýslur.

Fundi slitið - kl. 14:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?