Fjallskilanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
7. fundur 20. júní 2016 kl. 15:00 - 15:30 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Ásvaldur Magnússon formaður
  • Ómar Dýri Sigurðsson aðalmaður
  • Svala Sigríður Jónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Brynjar Þór Jónasson sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs
Fundargerð ritaði: Brynjar Þór Jónasson sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs
Dagskrá

1.Fjallskil 2016 - 2016060036

Útgáfa fjallskilaseðils. Samkvæmt Fjallskilasamþykkt fyrir Barðastrandar- og Ísafjarðarsýslur, 14. ágúst 2012, skal hlutaðeigandi sveitarstjórn eða fjallskilanefnd árlega fyrir 20. ágúst, semja fjallskilaseðil þar sem mælt er fyrir um hvernig fjallskilum skuli hagað. Fjallskilaseðill skal berast eigi síðar en 15 dögum áður en fjallskil byrja þar sem kemur fram hvað hver fjáreigandi á að leggja til fjallskila á því hausti. Skal tilnefna leitarstjóra einn eða fleiri sem stjórni göngum leitarmanna og annist að leitir fari vel og skipulega fram.
Fjallskilanefnd leggur til að smölun fari fram á þann veg að bændur og aðrir fjáreigendur smali eftir niðurröðun í sláturhúsi.
Fyrri leitir verði laugardaginn 24. og 25. september nk. og seinni leitir 8. og 9. október nk.
Fé úr seinni leitum verði ekki sleppt í haga fyrr en eftir 15. október nk.

Lagt er til að eftirtaldir aðilar verði gangna- og réttarstjórar í Ísafjarðarbæ.

Í Skutulsfirði:
Hraunsrétt:
Hallgrímur Hjálmarsson.
Kirkjubólsrétt:
Kristján Jónsson.
Arnardalsrétt:
Þorbjörn H. Jóhannesson.

Í Súgandafirði.
Keflavík að Seli:
Svavar Birkisson.
Frá Seli að Sunddal:
Kristján Karlsson.
Sunddalur fyrir Sauðanes að Flateyri:
Þorvaldur H. Þórðarson.

Í Önundarfirði:
Svæði 1. Frá Flateyri að Breiðadalsá:
Ásvaldur Magnússon.
Svæði 2. Frá Breiðadalsá að Vífilsmýrum:
Ásvaldur Magnússon.
Svæði 3. Vífilsmýrar að Þórustöðum:
Ásvaldur Magnússon.
Svæði 4. Þórustaðir að Ingjaldssandi:
Guðmundur St. Björgmundsson og Martha Sigríður Örnólfsdóttir.

Í Dýrafirði, Mýrahreppi hinum forna:
Svæði 1. Ingjaldssandur:
Elísabet Pétursdóttir.
Svæði 2. Frá Fjallaskaga um Ytri- Hlíðar, Nesdal og Barða:
Elísabet Pétursdóttir.
Svæði 3. Frá Fjallaskaga að Alviðru:
Hermann Drengsson.
Svæði 4. Alviðrufjall og Núpsdalur:
Guðmundur Ásvaldsson og Jón Skúlason.
Svæði 5. Frá Hvassahrygg að Glórugili:
Jón Skúlason og Karl A. Bjarnason
Svæði 6. Frá Glórugili að Höfða:
Hermann Drengsson og Steinþór A. Ólafsson.
Svæði 7. Höfði að Botnsá:
Sighvatur Jón Þórarinsson og Guðmundur Steinþórsson.

Í Dýrafirði, Þingeyrarhreppi hinum forna:
Svæði 1. Frá Botnsá að Þingeyri:
Ómar Dýri Sigurðsson.
Svæði 2. Brekkudalur að Kirkjubólsdal:
Sigþór Gunnarsson og Guðrún Steinþórsdóttir.
Svæði 3. Kirkjubólsdalur að Hólum:
Sigrún Guðmundsdóttir.
Svæði 4. Hólar að Lokinhömrum:
Friðbert Jón Kristjánsson og Kristján Gunnarsson.

Í Arnarfirði, Auðkúluhreppi hinum forna:
Svæði 1. Lokinhamradalur:
Friðbert Jón Kristjánsson.
Svæði 2. Stapadalur og Álftamýri:
Guðmundur G. Guðmundsson.
Svæði 3. Bauluhús að Hjallkárseyri:
Hreinn Þórðarson og Guðrún Íris Hreinsdóttir.
Svæði 4. Hjallkárseyri að varnarg. á Mjólkárhlíð:
Steinar R. Jónasson.
Svæði 5. Frá Mjólkárhlíð til og með Hokinsdal:
Sæmundur Bjarni Guðmundsson.

Húsráðendur þar sem aðkomufé er rekið til réttar eða húsa skulu tilkynna eigendum þess um það svo fljótt sem auðið er.

Réttardagar árið 2017 eru ákveðnir 23. og 24. september fyrir fyrri leitir og seinni leitir 7. og 8. október.

Fundi slitið - kl. 15:30.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?