Fjallskilanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Fjallskil 2026 - 2026040132
Lagður fram til kynninga tölvupóstur dagsettur 14. apríl 2026, frá Sigurbjörgu Bergsdóttur f.h. Mast þar sem vakin er athygli á nýrri reglugerð um flutning sauð- og geitfjár yfir varnarlínur nr 253/2026.
Nefndin bendir á að þegar línubrjótar koma fram við fjallskil eða réttir skuli hafa samband við eigendur og þeim gefinn kostur á að sýna fram á hvort viðkomandi dýr uppfylli skilyrði reglugerðarinnar. Formanni og starfsmanni Ísafjarðarbæjar er falið að koma upplýsingum um reglugerðina til gangna- og réttarstjóra fyrir fjallskil 2026.
2.Fjallskil 2026 - 2026040132
Lagt er fram erindi frá Matvælastofnun, dagsett 4 maí 2026, vegna lausagangandi sauðfjár í Eyrarhlíð á milli Hnífsdals og Ísafjarðar.
Jafnframt er lagt fram erindi frá Jóni Skúlasyni á Gemlufalli í Dýrafirði, sem barst sveitarfélaginu símleiðis, þar sem fram kemur að hann hafi tekið í hús ómerkt búfé, tvær ær með nýbornum lömbum. Fjallskilanefnd fer með umsjón og ábyrgð á slíku fé á meðan það er í óskilum og ákveður frekari ráðstöfun þess.

Fjallskilanefnd Ísafjarðarbæjar tók fyrir erindi Matvælastofnunar, dags. 4. maí 2026, vegna lausagangandi fjár í Eyrarhlíð milli Hnífsdals og Ísafjarðar.
Fram kemur í erindinu að um sé að ræða merkta á með tveimur lömbum frá fyrra ári sem hafi sést á svæðinu frá því í vetur. Matvælastofnun óskar eftir að Ísafjarðarbær taki málið til meðferðar. Nefndin tekur fram að frá 1. maí er sauðfé almennt á beit og því er ekki sjálfgefið að grípa þurfi til smölunar eða handsömunar eingöngu vegna þess að fé sé úti. Formanni og starfsmanni Ísafjarðarbæjar er falið að kanna málið, staðfesta merkingar fjárins, leita upplýsinga um eiganda og meta hvort þörf sé á aðgerðum vegna dýravelferðar, umferðaröryggis, tjóns, lausagöngu á óheimiluðu svæði eða vanrækslu.
Jafnframt tók Fjallskilanefnd Ísafjarðarbæjar fyrir erindi Jóns Skúlasonar á Gemlufalli vegna fjár sem fannst við Arnarnes / Birnustaði í Dýrafirði og er nú í tímabundinni vörslu hjá honum. Um er að ræða tvær hvítar kollóttar ær með þremur lömbum. Fram kemur í erindinu að féð sé ómarkað og ómerkt, án sjáanlegra eyrnamerkja, marka eða annarra auðkenna. Með erindinu fylgja myndir af fénu. Jón hafði samband við héraðsdýralækni og tók féð í hús samkvæmt ráðleggingu hans. Nefndin samþykkir að fara með féð sem ómerkinga / óskilafé þar til annað kemur í ljós. Formanni er falið að skrá féð, auglýsa eftir eiganda á heimasíðu Ísafjarðarbæjar, hafa samband við viðeigandi gangna- og réttarstjóra fyrir svæðið og halda utan um kostnað vegna vörslu, fóðrunar, flutnings og meðferðar.

Fundi slitið - kl. 15:30.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?