Fjallskilanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
16. fundur 17. maí 2023 kl. 10:00 - 11:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Bernharður Guðmundsson aðalmaður
  • Þorbjörn Halldór Jóhannesson aðalmaður
  • Helga Guðný Kristjánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Smári Karlsson
Fundargerð ritaði: Smári Karlsson verkefnastjóri umhverfis- og eignasviðs
Dagskrá

1.Ágangur búfjár - erindi til sveitarstjórna - 2023020056

Á 1230. fundi bæjarráðs, þann 13. febrúar 2023, var lagður fram til kynningar tölvupóstur Flosa Hrafns Sigurðssonar f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga, dagsettur 6. febrúar 2022, ásamt minnisblaði Karls Björnssonar, framkvæmdastjóra sambandsins, dagsettu 3. febrúar 2022, um ágang búfjár.

Bæjarráð vísaði málinu til kynningar í umhverfis- og framkvæmdanefnd og fjallskilanefnd.
Lagt fram til kynningar.

2.Fjallskil 2023 - 2023050112

Útgáfa fjallskilaseðils. Samkvæmt Fjallskilasamþykkt fyrir Barðastrandar- og Ísafjarðarsýslur, 14. ágúst 2012, skal hlutaðeigandi sveitarstjórn eða fjallskilanefnd árlega fyrir 20. ágúst, semja fjallskilaseðil þar sem mælt er fyrir um hvernig fjallskilum skuli hagað. Fjallskilaseðill skal berast eigi síðar en 15 dögum áður en fjallskil byrja þar sem kemur fram hvað hver landeigandi á að leggja til fjallskila á því hausti. Skal tilnefna leitarstjóra einn eða fleiri sem stjórni göngum leitarmanna og annist að leitir fari vel og skipulega fram.
Tillaga formanns að fjallskilaseðli 2023 samþykkt.

Fjallskilanefnd gat ekki fundið leitarstjóra fyrir svæði 3 í Mýrarhreppi hinum forna - frá Fjallaskaga að Alviðru. Fjallskilanefnd vísar til bæjarstjórnar að tilnefna leitarstjóra á svæði 3, í samræmi við 8 gr. fjallskilasamþykktar Barðastrandar- og Ísafjarðarsýslna.

Fundi slitið - kl. 11:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?