Fjallskilanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
13. fundur 16. ágúst 2021 kl. 15:00 - 17:00 í fundarherbergi 4. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Elísabet Margrét Jónasdóttir formaður
  • Ómar Dýri Sigurðsson aðalmaður
  • Svala Sigríður Jónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Axel Rodriguez Överby sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs
Fundargerð ritaði: Axel Rodriguez Överby sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs
Dagskrá

1.Fjallskil 2021, smölun - 2021080003

Útgáfa fjallskilaseðils. Samkvæmt Fjallskilasamþykkt fyrir Barðastrandar- og Ísafjarðarsýslur, 14. ágúst 2012, skal hlutaðeigandi sveitarstjórn eða fjallskilanefnd árlega fyrir 20. ágúst, semja fjallskilaseðil þar sem mælt er fyrir um hvernig fjallskilum skuli hagað. Fjallskilaseðill skal berast eigi síðar en 15 dögum áður en fjallskil byrja þar sem kemur fram hvað hver landeigandi á að leggja til fjallskila á því hausti. Skal tilnefna leitarstjóra einn eða fleiri sem stjórni göngum leitarmanna og annist að leitir fari vel og skipulega fram.
Fjallskilanefnd leggur til að smölun fari fram á þann veg að bændur og aðrir fjáreigendur smali eftir niðurröðun í sláturhúsi.

Fyrri leitir verði laugardaginn 25. september og sunnudaginn 26. september 2021 og seinni leitir laugardaginn 9. október og sunnudaginn 10. október 2021, eins og ákveðið var á 13. fundi fjallskilanefndar 16. ágúst 2021.
Fé verði ekki sleppt í haga fyrr en eftir 15. október 2021.

Réttardagar árið 2021 eru ákveðnir laugardagurinn 25 september og sunnudagurinn 26. september fyrir fyrri leitir og seinni leitir laugardagurinn 9. október og sunnudagurinn 10. október.


Lagt er til að eftirtaldir aðilar verði gangna- og réttarstjórar í Ísafjarðarbæ.

Í Skutulsfirði:
Hraunsrétt:
Hallgrímur Hjálmarsson.
Kirkjubólsrétt:
Kristján Jónsson.
Arnardalsrétt:
Þorbjörn H. Jóhannesson.

Í Súgandafirði.
Keflavík að Seli:
Svavar Birkisson.
Frá Seli að Sunddal:
Kristján Karlsson.
Sunddalur fyrir Sauðanes að Flateyri:
Þorvaldur H. Þórðarson.

Í Önundarfirði:
Svæði 1. Frá Flateyri að Breiðadalsá:
Björn Drengsson
Svæði 2. Frá Breiðadalsá að Vífilsmýrum:
Jónatan Magnússon.
Svæði 3. Vífilsmýrar að Þórustöðum:
Ásvaldur Magnússon.
Svæði 4. Þórustaðir að Ingjaldssandi:
Guðmundur St. Björgmundsson og Steinþór B. Kristjánsson.

Í Dýrafirði, Mýrahreppi hinum forna:
Svæði 1. Ingjaldssandur:
Elísabet Pétursdóttir.
Svæði 2. Frá Fjallaskaga um Ytri- Hlíðar, Nesdal og Barða:
Elísabet Pétursdóttir.
Svæði 3. Frá Fjallaskaga að Alviðru:
Hermann Drengsson.
Svæði 4. Alviðrufjall og Núpsdalur:
Hermann Drengsson og Jón Skúlason.
Svæði 5. Frá Hvassahrygg að Glórugili:
Jón Skúlason og Bryndís Ásta Birgisdóttir
Svæði 6. Frá Glórugili að Höfða:
Hermann Drengsson og Steinþór A. Ólafsson.
Svæði 7. Höfði að Botnsá:
Sighvatur Jón Þórarinsson og Sæmundur Bjarni Guðmundsson.

Í Dýrafirði, Þingeyrarhreppi hinum forna:
Svæði 1. Frá Botnsá að Þingeyri:
Ómar Dýri Sigurðsson.
Svæði 2. Brekkudalur að Kirkjubólsdal:
Sigþór Gunnarsson og Guðrún Steinþórsdóttir.
Svæði 3. Kirkjubólsdalur að Hólum:
Sigrún Guðmundsdóttir.
Svæði 4. Hólar að Lokinhömrum:
Friðbert Jón Kristjánsson og Kristján Gunnarsson.

Í Arnarfirði, Auðkúluhreppi hinum forna:
Svæði 1. Lokinhamradalur:
Friðbert Jón Kristjánsson.
Svæði 2. Stapadalur og Álftamýri:
Guðmundur G. Guðmundsson.
Svæði 3. Bauluhús að Hjallkárseyri:
Guðjón Ingólfsson og Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Svæði 4. Hjallkárseyri að varnargarði á Mjólkárhlíð:
Guðjón Ingólfsson og Jóna Guðmunda Hreinsdóttir
Svæði 5. Frá Mjólkárhlíð til og með Hokinsdal:
Sæmundur Bjarni Guðmundsson.

Húsráðendur þar sem aðkomufé er rekið til réttar eða húsa skulu tilkynna eigendum þess um það svo fljótt sem auðið er. Fjallskilanefnd leggur til að fjallskilasamþykkt verði endurskoðuð fyrir árið 2022

Fundi slitið - kl. 17:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?