Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 8. fundur - 29. janúar 2015
Dagskrá:
|
1. |
2015010027 - Veraldarvinir - sjálfboðaliðar |
|
|
Lagður er fram tölvupóstur Þórarins Ívarssonar, framkvæmdastjóra Veraldarvina, frá 8. janúar sl., þar sem óskað er eftir samstarfi við Ísafjarðarbæ. |
||
|
Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur umhverfisfulltrúa að skoða málið og vera í sambandi við bréfritara. |
||
|
|
||
|
2. |
2015010015 - Vegagerðin - starfsleyfi fyrir rekstur bikbirgðastöðvar á Ísafirði |
|
|
Lagt fram bréf Umhverfisstofnunar dags. 30. desember 2014 ásamt tillögu að starfsleyfi fyrir bikbirgðastöð Vegagerðarinnar á Mávagarði. |
||
|
Umhverfis- og framkvæmdanefnd gerir ekki athugasemd við tillögu að starfsleyfi fyrir Vegagerðina. |
||
|
|
||
|
3. |
2014100013 - Virkjun bæjarlæksins á Hesteyri |
|
|
Tekið fyrir að nýju erindi frá Hrólfi Vagnssyni um leyfi til að virkja bæjarlækinn á Hesteyri. |
||
|
Umhverfis- og framkvæmdanefnd gerir ekki athugasemd við erindið en óskar eftir teikningum af inntaksmannvirki og húsi áður ef leyfi verður veitt. Þá bendir nefndin bréfritara á að leyfi landeiganda þurfi einnig fyrir framkvæmdinni. |
||
|
|
||
|
4. |
2014100066 - Verndar- og stjórnunaráætlun fyrir náttúruvættið Dynjanda í Arnarfirði |
|
|
Lögð fram drög að verndaráætlun um Dynjanda frá Umhverfisstofnun, dags. 26. 1. 2015 |
||
|
Umhverfis- og framkvæmdanefnd fagnar því að verndar- og stjórnunaráætlun 2015-2024 sé komin fram. Nefndin óskar eftir upplýsingum hvort IUCN flokkun sé þegar í gildi eða hvort um sé að ræða breytingu. |
||
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:50
|
Gunnar Jónsson |
|
Kristín Hálfdánsdóttir |
|
Óðinn Gestsson |
|
Jóna Símonía Bjarnadóttir |
|
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Jóhann Birkir Helgason |
|
Ralf Trylla |
|
|