Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 34. fundur - 13. september 2016

Dagskrá:

1.  

Göngustígar í Ísafjarðarbæ - 2016070002

 

Nefndin leggur til að tæknideild afmarki verkefni í stígagerð eftir ábendingum frá hverfisráðum Ísafjarðarbæjar og geri ráð fyrir lagfæringum, með sérstaka áherslu á nýja stígagerð við golfvöllinn, í næstu fjárhagsáætlun.

 

   

2.  

Sauðfjárbeit innan þéttbýlis - 2016040050

 

Lögð fram samantekt um sauðfjárbeit á Suðureyri sumarið 2016.

 

Nefndin fagnar verkefninu og leggur til að það verði endurtekið á næsta ári.

 

   

3.  

Sorpmál 2018 - útboð - 2016090021

 

Lögð fram aðgerðaráætlun um sorpmál 2018

 

Nefndin leggur til að vinnu við úttekt og útboð á sorpmálum í Ísafjarðarbæ verði hraðað eins og kostur er.

 

   

4.  

Tjöld og húsbílar innan þéttbýlis Ísafjarðarbæjar - 2016020052

 

Umræða um fund með lögreglu um lögreglusamþykkt.

 

Umhverfisnefnd átti góðan fund varðandi lögreglusamþykkt Ísafjarðarbæjar og eru aðilar sammála um að leggjast á eitt að framfylgja henni.

 

   

5.  

Fjárhagsáætlun 2017 - 2016020047

 

Lögð fram gjaldkrá ásamt viðbót um númerlausa bíla og samþykkt um rotþrær

 

Nefndin gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaðar gjaldskrár hækkanir í samræmi við ákvörðun bæjarráðs.

 

   

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:10

 

Nanný Arna Guðmundsdóttir

 

Kristín Hálfdánsdóttir

Helga Dóra Kristjánsdóttir

 

Gísli Elís Úlfarsson

Ralf Trylla

 

Brynjar Þór Jónasson

Er hægt að bæta efnið á síðunni?